2007


Hagnaður VBS fjárfestingabanka  rúmlega fimmfaldast frá fyrra ári
Hreinar vaxtatekjur  aukast um 238%, arðsemi eigin fjár 26,7% fyrir skatta
1.	Lykiltölur og kennitölur úr ársreikningi
Lykiltölur úr ársreikningi					
Rekstrarreikningur	2007	2006	2005	2004	2003
Vaxtatekjur	2.811.430	1.138.518	676.350	230.102	94.707
Vaxtagjöld	1.822.873	846.421	207.627	106.493	37.154
Hreinar vaxtatekjur	988.557	292.097	468.723	123.609	57.553
					
Hreinar þjónustutekjur	1.497.005	573.302	420.566	278.018	222.181
Aðrar rekstrartekjur	292.307	5.421	28.731	29.578	22.104
Hreinar rekstrartekjur	2.777.869	870.820	918.020	431.205	301.838
					
Laun og tengd gjöld	665.117	176.429	311.479	157.369	108.170
Rekstrarkostnaður	176.018	143.028	88.567	79.545	70.759
Rekstrargjöld alls	841.135	319.457	400.046	236.914	178.929
					
Virðisrýrnun viðskiptavildar	85.000	0	0	0	
Virðisrýrnun útlána	120.413	295.188	23.048	15.967	13.514
Hagnaður fyrir skatta	1.731.321	256.175	494.926	178.324	109.395
Tekjuskattur	314.902	38.996	88.135	31.305	19.451
Hagnaður tímabils	1.416.419	217.179	406.791	147.019	89.944
					
					
Efnahagsreikningur	2007	2006	2005	2004	2003
 	 	 	 		
Handbært fé	1.351.424	151.576	277.716	57.399	37.776
Lán og kröfur	24.690.796	9.304.144	4.761.686	2.002.746	634.659
Veltufjáreignir og fjáreignir á
gangvirði	5.714.831	5.686.838	996.056	408.584	81.597 
Aðrar eignir	3.468.087	1.693.238	325.022	290.106	176.548
Eignir samtals	35.225.138	16.835.796	6.360.480	2.758.835	930.580
 	 	 	 		
					
Lántaka	24.376.116	9.260.188	4.128.555	1.678.063	283.344
Víkjandi lántökur	500.936	473.818	412.917	208.029	0
Aðrar skuldir	2.029.567	962.286	568.681	398.962	317.277
Eigið fé	8.318.519	6.139.504	1.250.327	473.781	329.959
Skuldir og eigið fé samtals	35.225.138	16.835.796	6.360.480	2.758.835	930.580
					
Kennitölur					
					
Arðsemi eigin fjár	21,9%	13,0%	62,9%	48,0%	38,0%
Eiginfjárþáttur A 	20,9%	16,8%	21,2%	18,2%	46,5%
Eiginfjárhlutfall (CAD)	22,3%	20,8%	28,3%	26,0%	46,5%
Hlutfall rekstrarkostnaðar af hreinum
rekstrartekjum	30,3%	36,7%	43,6%	54,9%	59,3% 
Framlag í afskriftarreikning af stöðu útlána í lok
árs	0,49%	3,17%	0,48%	0,80%	2,13% 


VBS fjárfestingarbanki hf. skilaði 1.731 milljóna króna hagnaði fyrir skatta á
árinu 2007 en það jafngildir 26,7% ávöxtun eigin fjár á árinu. Að teknu tilliti
til skatta var hagnaðurinn 1.416 milljónir sem jafngildir 21,9% ávöxtun eigin
fjár á ársgrundvelli. Samkvæmt uppgjöri ársins 2007 nemur eigið fé rúmum 8,3
milljörðum króna og er eiginfjárhlutfall (CAD) 22,3%. Hlutfall rekstrakostnaðar
af tekjum var aðeins um 30,3% sem er lágt í samanburði við íslenska banka og 
fjármálafyrirtæki. Bankinn er fjárhagslega sterkur og er því vel í stakk búinn
til frekari vaxtar. 

Helstu niðurstöður úr ársreikningi VBS fjárfestingarbanka fyrir árið 2007:
•	Hagnaður bankans eftir skatta árið 2007 rúmlega fimmfaldaðist frá fyrra ári,
nam 1,4 milljarði króna . 
•	Hagnaður fyrir skatta nam 1,7 milljarði króna, sem er 576% aukning frá árinu
2006. 
•	Hreinar vaxtatekjur ársins 2007 jukust 238% frá fyrra ári.
•	Rekstrartekjur jukust um 219% og námu 2,8 milljörðum króna.
•	Þóknunartekjur jukust um 161% á milli ára, námu 1,5 milljarði króna.
•	Arðsemi eigin fjár fyrir skatta nam 26,7%
•	Arðsemi eigin fjár eftir skatta nam 21,9%
•	Eigið fé jókst um 35% á árinu úr 6,1 milljarði króna árið 2006 í 8,3
milljarða árið 2007. 
•	Kostnaðarhlutfall var 30,3%
•	Eignir jukust um 109% milli ára.  Eru nú 35,2 milljarðar.
•	VBS á engar eignir tengdar skuldabréfavafningum eða svo kölluðum
undirmálslánum (e. sub-prime) 
•	Stjórn bankans mun óska eftir heimild aðalfundar til að sækja um
viðskiptabankaleyfi til Fjármálaeftirlitisins. 
•	Stjórn bankans mun óska eftir heimild aðalfundar til útgáfu nýs hlutafjár að
upphæð 150 milljónir að nafnverði, m.a. til að mæta fyrirhuguðum vexti. 

2.	Reikningsskilaaðferðir
Ársreikningurinn er fyrsti ársreikningur félagsins sem gerður er  samkvæmt
alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og hefur fjárhæðum í opnunarefnahagsreikningi
1. janúar 2006 verið breytt til samræmis við þá.  Einnig hafa rekstrarliðir á
árinu 2006 verið endurreiknaðir og framsetningu breytt eins og nánar er greint
í skýringu 69 í ársreikningnum.  Heildaráhrif þessara breytinga á eigið fé í
byrjun árs 2007 nema hækkun að fjárhæð 43,4 milljónir kr. 
VSB fjárfestingabanki og Fjárfestingarfélag Sparisjóðanna hf. (FSP) sameinuðust
á árinu og miðaðist sameiningin við 1. janúar 2007 og hefur samanburðartölum í
efnahagsreikningi verið breytt til samræmis.  Áhrif þessa á eigið fé VSB í
byrjun árs nema aukningu eigin fjár um 5 milljarða króna og eru áhrifin á
einstaka liði greind nánar í skýringu 70 í ársreikningnum. 
3.	Umfjöllun um niðurstöður
Árið 2007 var ár breytinga í rekstri VBS fjárfestingarbanka. Sameining við
Fjárfestingarfélag Sparisjóðanna auðveldaði vöxt og  fjölbreytni í rekstri
bankans. Fjöldi hæfileikaríks fólks bættist í hóp starfsmanna og ný starfssvið 
voru sett á fót. Þá voru innviðir styrktir til muna og innra erftirlit hert.
Samhliða öflugu uppbyggingarstarfi náðist frábær árangur í rekstri. Hagnaður
bankans nam 1,7 milljarði fyrir skatta. Arðsemi eigin fjár var 24,1% fyrir
skatta og kostnaðarhlutfall aðeins 34,8% sem er með því lægsta sem gerist. 
Tekjumyndun bankans verður stöðugt fjölbreyttari og uppruni tekna frá fleiri
starfssviðum.   Lánasafn VBS er traust og hefur dreifing þess aukist mikið á
árinu. Megin hluti þess er til innlendra aðila og hefur vægi lána til
nýbygginga dregist stórlega saman á árinu. 
Hagnaður VBS fjárfestingarbanka hf. árið 2007 nam 1.416 milljónum kr. eftir
skatta og er hagnaðurinn 1.199 milljónum króna meiri en árið á undan. 
Hreinar vaxtatekjur námu 988,6 milljónum króna og hafa vaxið um 238% milli ára.
Hreinar þóknanatekjur námu 1.497 milljónum sem er 924 milljónum meira en árið á
undan. 
Rekstarafkoma bankans er framúrskarandi miðað við hinn mikla vöxt á árinu og
aðstæður á fjármálamörkuðum á síðari hluta ársins. Tekjumyndun verður sífellt
fjölbreyttari  og uppruni tekna á fleiri starfssviðum. Bankinn hefur ekki
fjárfest í skuldabréfavafningum og ber enga áhættu af bandarískum
undirmálslánum. 
Eignir bankans jukust árið 2007 úr 16,8 milljörðum í 35,2 milljarða og var
eigið fé í árslok 2007 8,3 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall (CAD) er 22,3%. 
4.	Horfur 
Það er trú okkar hjá VBS að tímabundnir erfiðleikar á mörkuðum skapi mikilsverð
 viðskiptatækifæri fyrir bankann. Framundan eru margvísleg verkefni, m.a. hefur
stjórn samþykkt að leggja til við aðalfund að sótt verði um viðskiptabankaleyfi
til Fjármálaeftirlitsins. Sömuleiðis er í undirbúningi að hefja starfsemi á
fleiri  sviðum fjármálaþjónustu.  VBS fjárfestingarbanki hefur margfaldast á
nýliðnu ári, efnahagsreikningur rúmlega tvöfaldaðist og hreinar vaxtatekjur
einnig. Áætlanir okkar gera ráð fyrir áframhaldandi vexti og sókn. Í
nýsamþykktri stefnumótun er  sérstök áhersla lögð á að byggja upp traust og
sveigjanlegt samband við viðskiptavini og veita þeim framúrskarandi þjónustu á
þeim mörkuðum sem þeir starfa á.  Starfsmenn VBS fjárfestingarbanka líta því
björtum augum til  ársins 2008. 
5.	Aðalfundur
Aðalfundur VBS verður haldinn 22. febrúar.  Tillögur til aðalfundar varða
greiðslu arðs að fjárhæð 300 milljónir króna, kaup á eigin bréfum, útgáfu nýrra
hluta að nafnvirði 150 milljónir króna, starfskjarastefnu auk þess sem óskað
verur heimildar til þess að sækja um viðskiptabankaleyfi. 

Nánari upplýsingar veitir Jón Þórisson, forstjóri VBS fjárfestingarbanka, í
síma 894-0482

Attachments

arsreikningur 2007.pdf