Uppgjör Össurar fyrir fjórða ársfjórðung og ársuppgjör 2007


Helstu niðurstöður fyrir árið 2007

  * Sala var 335,6 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 33% frá 2006
  * Söluaukning vegna innri vaxtar var 7%
  * EBITDA var 64,4 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 63% frá 2006
  * EBITDA leiðrétt var 58,4 milljónir, jókst um 22% frá 2006
  * Hagnaður tímabilsins var 7,6 milljónir Bandaríkjadala, jókst um
    74% frá 2006
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
    tilliti til kauprétta og óvenjulegra liða var 8,24 bandarísk
    sent, jókst um 31% frá 2006
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 1,94 bandarísk
    sent, jókst um 71% frá 2006
  * Hlutafjáraukning í nóvember


 Helstu niðurstöður fyrir fjórða ársfjórðung

  * Sala var 84,9 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 33% frá fjórða
    fjórðungi 2006
  * Söluvöxtur vegna innri vaxtar var 4%
  * EBITDA var 22,7 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 305%
  * Leiðrétt EBITDA var 13,5 milljónir dala, jókst um 22% frá sama
    tímabili 2006


Jón Sigurðsson, forstjóri:"Það sem  einkennir  árið  er  sterkur  innri  vöxtur  í  stoðtækjum,
endurskipulagning í Bandaríkjunum og innri uppbygging. Árangurinn sem
við sjáum í stoðtækjunum staðfestir forystu okkar á þessu sviði og að
við erum að uppskera vegna þeirrar endurskipulagningar sem ráðist var
í, til  að skapa  heildstætt sölukerfi  í kjölfar  fyrirtækjakaupanna
2000. Frá árinu 2005 höfum  við lokið við fjölda fyrirtækjakaupa  sem
hafa  veitt  okkur   aðgang  að  nýjum   markaði  fyrir  spelkur   og
stuðningsvörur. Til  þess  að  nýta til  fulls  samlegðaráhrif  vegna
þessara fyrirtækjakaupa  höfum við  einbeitt okkur  að því  að  klára
endurskipulagninguna á sölukerfum félagsins  í Bandaríkjunum, en  hún
hefur haft áhrif á sölu okkar á þessu ári. Nýjar hátæknivörur sem  og
önnur vöruþróun er niðurstaða stöðugrar fjárfestingar í rannsóknum og
þróun. Við höfum einnig kynnt fjölmargar nýjar og endurbættar spelkur
og stuðningsvörur  sem  hafa  hlotið góðar  viðtökur  sem  staðfestir
þörfina fyrir vörunýjungar á þessum markaði. Við erum sannfærð um  að
viðsnúningur á  sölu á  spelkum sé  í sjónmáli  og að  við munum  sjá
áhrifin á árinu 2008".

*Samkvæmt reikningsskilareglum miðast umreikningur rekstrarliða milli
gjaldmiðla við meðalgengi rekstrartímabils. Við umreikning
efnahagsliða er notað gengi í lok ársfjórðungsins.

Live comments form the CEO, see link here below:
www.ossur.com/ceocomments

Attachments

Ossur afkomufrett Q4 2007 Ossur Investor Presentation 5 February 2008 Ossur hf. Financial Statement 2007