1.204 milljónir kr. hagnaður hjá Frjálsa - Arðsemi eigin fjár 26% Samkvæmt ársreikningi Frjálsa fjárfestingarbankans hf. fyrir árið 2007, nam hagnaður bankans 1.204 millj. kr. eftir skatta, samanborið við 694 millj. kr. árið 2006. Hagnaður jókst um 74% á milli ára. Arðsemi eigin fjár var 26% fyrir árið 2007. Hagnaður fyrir skatta nam 1.468 millj. kr., reiknaður tekjuskattur 264 millj. kr. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegar reglur um gerð samstæðureikningsskila (IFRS). Hreinar vaxtatekjur námu 798 millj. kr. á árinu, samanborið við 827 millj. kr. á árinu 2006, og hafa því lækkað lítillega á milli ára. Vaxtamunur var 1,3% á árinu 2007 samanborið við 1,8% vaxtamun á árinu 2006. Þjónustutekjur hækkuðu um 51% frá árinu 2006 og námu alls 155 millj. króna. Aðrar rekstrartekjur námu alls 1.137 millj. kr. og hækkuðu um 174% frá árinu 2006. Mikil hækkun á hreinum tekjum af fjáreignum er helsta ástæða hækkunar á öðrum rekstrartekjum. Kostnaðarhlutfall Frjálsa var rúm 24% á árinu 2007 og lækkar úr 33% frá árinu á undan. Önnur rekstrargjöld námu alls 511 millj. kr. samanborið við 437 millj. kr. á árinu 2006, sem er um 17% hækkun á milli ára. Niðurstaða efnahagsreiknings var 70.492 millj. kr. í lok árs 2007 og hefur hækkað um 27% frá áramótum. Heildarútlán námu alls 63.762 millj. kr. í lok árs 2007 og hækkuðu því útlán bankans um 20% frá áramótum. Virðisrýrnun útlána nam 111 millj. kr. á árinu 2007, samanborið við 64 millj. kr. á árinu 2006. Endanleg töpuð útlán námu 54 millj. kr. á árinu 2007. Vanskil, sem hlutfall af heildarútlánum, námu 0,30% í árslok 2007. Á afskriftareikningi útlána í lok árs 2007, voru 390 millj. kr., sem er 0,6% hlutfall af heildarútlánum. Eigið fé í lok árs 2007 nam 5.823 millj. kr. og hefur hækkað um 26% frá áramótum. Eiginfjárhlutfall (CAD) bankans í lok árs 2007 var 13,4% en var 13,3% í lok árs 2006. Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingarbankans: ”Árið 2007 var mjög hagfelt fyrir Frjálsa. Metafkoma þriðja árið í röð, hagnaður ársins rúmur 1,2 milljarður króna. Allir grunnþættir bankans gengu vel, vanskil eru lág og útlánasafnið traust, en 99% af útlánum bankans eru tryggð með fasteignaveði. Á árinu var unnið við að styrkja enn frekar undirstöður í rekstri bankans en stefnt er að frekari stækkun efnahagsreiknings á næstu árum og að fjölþættari tekjugrunni.” Kristinn Bjarnason framkvæmdastjóri
2007
| Source: Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.