Fimmtudaginn 21. febrúar, kl. 14:00, fer fram útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Um er að ræða nýjan flokk ríkisbréfa, RIKB 19 0226, sem ber árlega vexti, 26 febrúar ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 26. febrúar 2019. Ákvörðun um árlega nafnvexti ákvarðast í kjölfar útboðs. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 10.000 milljónir króna að nafnverði. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Rétt er að benda á að hér er ekki um verðuppboð að ræða eins og verið hefur í fyrri útboðum heldur skal senda inn tilboð í formi ávöxtunarkröfu með tveimur aukastöfum. Útboðið verður með hollensku sölufyrirkomulagi sem þýðir að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sömu ávöxtunarkröfu. Hæsta samþykkta krafan ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 26. febrúar 2008. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 19 0226 ISIN IS0000017077 Lokagjalddagi 26.02.2019 Lánstími 11 ár Útistandandi 0 kr. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á ávöxtunarkröfu samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á uppgjörsdegi útboðsins. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1). Niðurstaða útboðs verður birt í lok viðskiptadags. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamál ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.