Alfesca birtir uppgjör annars ársfjórðungs fjárhagsársins 2007-08 (okt - des 2007) 19. febrúar nk eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir fjárfesta, greiningaraðila og fjölmiðla verður haldinn sama dag, þar sem Xavier Govare, forstjóri félagsins mun fara yfir uppgjörið. Dags: þriðjudagur 19. febrúar 2007 Staður: Hilton Reykjavík Nordica Tími: kl. 17:15 Þetta er ný dagsetning, fundartími og -staður frá því sem áður var tilkynnt um kynningarfundinn. Vefvarp frá fundinum má nálgast á vefsíðu Alfesca, www.alfesca.com, við upphaf fundarins. Afrit af kynningum má nálgast á vefsíðu félagsins að fundi loknum. Um Alfesca Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia, Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 616 milljónir Evra og starfsmenn eru um 3,500. Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A). Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com Nánari upplýsingar veita: Antony Hovanessian framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar í síma 477 7000 Hrefna Ingólfsdóttir forstöðumaður samskiptasviðs í síma 477 7007 Fréttatilkynning þessi er birt á bæði ensku og íslensku. Ef um misræmi er að ræða gildir enski textinn.