Uppgjör Eikar fasteignafélags hf. 2007


Reykjavík, 19. febrúar 2008                                                     

Eik fasteignafélag hf. birti í dag ársreikning sinn, að loknum stjórnarfundi þar
sem reikningar félagsins voru samþykktir.                                       

Afkoma Eikar fasteignafélags hf. árið 2007:                                     
Hagnaður fyrirtækisins var 1,7 milljarðar króna sem er 360% aukning frá árinu   
2006.

- Velta var 1,4 milljarður króna á árinu, sem er 19% aukning frá árinu 2006.
- EBITDA var 1 milljarður króna á árinu, sem er 19% aukning frá árinu 2006.
- Arðsemi eigin fjár var 110%, sem er 81% aukning frá árinu 2006.
- Heildareignir félagsins voru að andvirði 17,2 milljarða króna og hafa þær
  vaxið um 18% frá árinu 2006. 
- Víkjandi fjármagn, þ.e. eigið fé, víkjandi lán og tekjuskattsskuldbindingar
  voru að andvirði 4,1 milljarða króna og var það 36% aukning frá því árið
  2006. 
- Hlutfall víkjandi fjármagns var 23,9% og var það aukning upp á 3,2% frá árinu 
  2006.
- Veltufé fyrirtækisins vegna reksturs var 363 milljónir króna og var það 
  aukning upp 42% frá árinu 2006.

Fjárhagsleg áhætta
Starfsemi Eikar fasteignafélags hf. er fyrst og fremst falin í útleigu húsnæðis
og fjárhagsleg áhætta félagsins því aðallega þar, ásamt áhættu vegna 
fjármagnskostnaðar og gengisbreytinga. Staða Eikar fasteignafélags hf. á
leigumarkaði er sterk og mikil ásókn í leiguhúsnæðis hjá félaginu. Vel flestar
eignir félagsins eru í útleigu. Gera má ráð fyrir að á árinu 2008 gefist
tækifæri til leiguhækkana. Yfirgnæfandi meirihluti lána félagsins eru í
íslenskum krónum og með föstum vöxtum. Á móti erlendum lánum er félagið með
leigutekjur í erlendum gjaldmiðlum. Vaxta- og gengisbreytingar hafa því lítil
áhrif á félagið. 

Breytingar á eignasafni
Árið 2007 seldi Eik fasteignafélag hf. þrjár fasteignir úr eignasafni sínu:
Dalshraun 13 í Hafnarfirði og Hverfisgötu 26 og Seljaveg 2 í Reykjavík. Þá var
tveimur eignum bætt við eignasafn fyrirtækisins á sama tímabili, þar á meðal
einkahlutafélagið Ingólfsstræti 1a ehf., sem á samnefnda eign í Reykjavík. 

Breytt eignarhald á Eik fasteignafélagi hf.                                    
Í upphafi ársins 2007 var Eik fasteignafélag hf. selt til Eikarhalds ehf. Við
kaupin voru eigendur félagsins FL Group hf., Baugur Group hf., Saxbygg ehf. og
Fjárfestingarfélagið Primus ehf. Síðar á árinu seldi Baugur Group hf. sinn hlut
í Eikarhaldi ehf. til FL Group hf., sem á nú meirihluta í félaginu. 

Framtíð Eikar fasteignafélags hf. 
Í ljósi þess að staða útleigumála hjá fyrirtækinu er mjög sterk og félagið vel
varið gagnvart þeim erfiðu aðstæðum sem kunna að skapast á fjármálamarkaði á
árinu 2008, er framtíð Eikar fasteignafélags hf. björt. Fyrirtækið er tilbúið
til þess að takast á við samdrátt í íslensku efnahagslífi, á sama tíma og Eik
fasteignafélag hf. er undir það búið að treysta rætur sínar enn frekar á
komandi ári. 

Frekari upplýsingar gefur:                                                      
Garðar Hannes Friðjónsson,                                                      
forstjóri Eikar                                                                 
fasteignafélags hf.                                                             
S. 590-2200 / 861-3027

Attachments

arsskyrsla 2007.pdf afkomutafla.pdf