- Samruni Sp. Keflavíkur, Sp. Vestfirðinga og Sp.Húnaþings og Stranda samþykktur


Fjármálaeftirlitið veitti þann 22. febrúar 2008 samþykki fyrir samruna
Sparisjóðsins í Keflavík, Sparisjóðs Húnaþings og Stranda og Sparisjóðs
Vestfirðinga. Sparisjóðurinn í Keflavík tekur við öllum réttindum og skyldum
SpHún og SpVF frá og með 1. júlí 2007 . Sparisjóðirnir eru sameinaðir undir
nafni Sparisjóðsins í Keflavík.