Helstu niðurstöður fyrir árið 2007: Samstæðureikningur: * Tap eftir skatta í samstæðureikningi Atorku Group hf., var 900 milljónir króna. * Tap á fjórða ársfjórðungi var 3.373 milljónir króna. * Tekjur ársins voru 71,3 milljarðar króna. * Heildareignir samstæðunnar í lok ársins voru 103,7 milljarðar króna. * Eigið fé var 9 milljarðar króna í lok ársins. Móðurfélagsreikningur: * Hagnaður eftir skatta á árinu 2007 var 8.141 milljónir króna. * Hagnaður eftir skatta á fjórða ársfjórðungi var 1.371 milljónir króna * Heildareignir í lok árs voru um 62.325 milljónir króna, jukust um 45% á milli ára. * Eigið fé var 23.376 milljónir króna 31. desember 2007, sem er aukning um 36% frá árslokum 2006 að teknu tilliti til arðgreiðslu. * Arðsemi eigin fjár á árinu 2007 var 47% * Eiginfjárhlutfall er 38% * Hagnaður á hlut er 2,58 Helstu viðburðir * Allur eignarhlutur í Jarðborunum var seldur til Geysir Green Energy. Heildarvirði (Enterprise Value) sölunnar var 17,7 milljarðar króna. Innleystur hagnaður frá upphafi fjárfestingarinnar er um 11 milljarðar króna. * Atorka hefur endurfjármagnað stærstan hluta af skammtímalántökum sínum, með nýjum lántökum til 2 ára eða lengur. Aðeins 9% af langtímaskuldum eru til greiðslu á árinu 2008. * Atorka gerðist kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy og keypti 32% hlut í ágúst. Í febrúar 2008 jók Atorka eignarhlut sinn í Geysi og er nú stærsti hluthafinn með um 44% hlut. * Jarðboranir gerðu samning við Landsvirkjun um borun á fimm rannsóknarholum á næsta ári. Um mitt ár stofnaði Jarðboranir Hekla Energy í Þýskalandi til að mæta aukinni útrás félagsins og hafa Jarðboranir nú þegar hafið borverkefni í Þýskalandi fyrir Exorku, dótturfélag Geysir Green Energy. * Geysir Green Energy er stærsti eigandi að jarðhitaleyfum í Þýskalandi. * Geysir Green Energy keypti hlut Landsvirkjunar í Enex og á félagið nú um 72% hlut í Enex. * Iceland America Energy, félag í eigu Enex, vinnur að fjölda verkefna í Bandaríkjunum og lauk við að bora sína fyrstu holu nýlega í Truckhaven í Californiu. * Á fyrri hluta ársins lauk Promens við endurfjármögnun með sambankaláni frá DnB NOR, Nordea og LBNord. Fjármögnunin tryggir að félagið geti haldið áfram að vaxa með frekari kaupum á fyrirtækjum. * Á árinu lauk Promens yfirtöku á 3 plastframleiðslufyrirtækjum sem framleiða umbúðir, Novoplast í Rússlandi, Decoplast í Frakklandi og STE Packaging á Spáni. Ný verksmiðja var opnuð í Póllandi og verið er að skoða frekari fyrirtækjakaup í Austur Evrópu. * Í byrjun nóvember sameinaði Promens alla starfsemi sína undir einu nafni. * Atorka jók eignarhlut sinn í Interbulk í 40% á árinu í tengslum við hlutafjáraukningu og kaup félagsins á UBC sem er leiðandi í Evrópu á sérhæfðum gámaflutningum, einkum fyrir efnaiðnað. * Atorka keypti um 30% hlut í Clyde Process Solution (CPS) og studdi félagið við yfirtöku á MAC, sem er leiðandi fyrirtæki í Norður-Ameríku í framleiðslu á háþróuðum búnaði fyrir framleiðsluferli. * Eignarhlutur í Amiad Filteration hefur verið aukinn í tæp 23%. Amiad er leiðandi á alþjóðamarkaði í framleiðslu á vatnshreinsibúnaði. Mikill vöxtur er á þessum markaði. * Atorka hefur bætt við nýrri fjárfesingu í vatnshreinsiiðnaði með kaupum á um 14% hlut í Asian Environment Holdings. Félagið lauk til að mynda nýlega við uppbyggingu á 200.000 m3 vatnshreinsistöð í Kína sem félagið mun eiga og reka næstu 20 árin og vinnur að uppbyggingu á öðrum tug sambærilegra verkefna í Asíu. * Atorka keypti tæplega 24% hlut í Shanghai Century Acquisition Corp (SHA) sem er skráð á AMEX markaðnum í NY. SHA hefur fjárfest í fjármögnunarleigufélagi sem starfrækt er í Kína en sá markaður er vanþróaður og því mikil tækifæri til vaxtar. Félagið hafði áður tilkynnt fyrirhuguð kaup á samheitalyfjafyrirtæki í Kína sem háð var samþykki kínverskra yfirvalda. SHA sendi frá sér tilkynningu þann 20.febrúar 2008 þar sem sagt var frá því að kaupin voru ekki samþykkt. * Atorka seldi 3 fyrirtæki á heilbrigðismarkaði; Icepharma, Parlogis og Ilsanta. * Allar fjárfestingar eru færðar á markaðsvirði eða gangvirði (e. fair value) og eru engar fjárfestingar utan efnahagsreiknings. Félagið hefur sterka fjárhagsstöðu og er vel fjármagnað og með sterka stöðu handbærs fjár. Magnús Jónsson forstjóri Atorku Group;"Afkoma Atorku fyrir árið 2007 var góð þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður. Atorka innleysti verulegan hagnað með sölu á einu af fjárfestingarverkefnum sínum. Jafnframt fjárfesti félagið í nýju verkefni, Geysir Green Energy og er í dag stærsti hluthafi þess með um 44% hlut. Innan Geysis er unnið að fjölda verkefna í Evrópu, Asíu og Ameríku og hefur félagið sterka stöðu til þess að verða leiðandi í nýtingu á jarðvarma í heiminum. Atorka er í auknum mæli að beina sjónum sínum að Asíu nú síðast með kaupum á um 14% hlut í Asia Environment Holding sem er leiðandi félag í uppbyggingu á vatnshreinsistöðvum í Kína og víðar í Asíu. Ljóst er að með aukinni velmegun munu Kínverjar fjárfesta verulega í bættum lífsgæðum og sjáum við því mikil tækifæri í fjárfestingum því tengdu. Atorka er með mjög sterka fjárhagsstöðu og í góðri stöðu til að nýta sér þau tækifæri sem munu skapast á komandi misserum." Nánari upplýsingar veita; Magnús Jónsson, forstjóri í síma 540 6200 Valdís Arnardóttir kynningarstjóri í síma 840 6217 Reikninga Atorku Group hf. má finna á heimasíðu félagsins www.atorka.is
Afkoma Atorku Group hf. fyrir árið 2007
| Source: Atorka Group hf.