- 5. mars 2008


Vinnslustöðin hf. hefur undirritað samning um kaup á 35% hlutafjár í
Ufsabergi-útgerð ehf.  Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar
Vinnslustöðvarinnar og fjármögnun.  Gangi kaupin í gegn mun Vinnslustöðin taka
yfir rekstur skipsins síðar á árinu.  Kaupverð hlutafjárins er trúnaðarmál. 

Ufsaberg-útgerð ehf. rekur togskipið Gullberg VE-292, en skipið var keypt til
landsins á vormánuðum 2007.  Skipið er öflugt togskip, smíðað í Noregi árið
2000.