- Aðalfundur verður haldinn föstudaginn 28. mars nk.


Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 28. mars
2008 á Laugalandi, Holtum og hefst kl. 15:00. 

Dagskrá:

1.  Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu
    fulltrúa.
	 
2.  Skýrsla stjórnar félagsins. 

3.  Starfsemi félagsins á liðnu ári.

4.  Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.

5.  Skýrsla skoðunarmanna.

6.  Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.

7.  Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og
    tillögu stjórnar um vexti og arð af stofnsjóði. 

8.  Afgreiðsla ársreiknings og tillögu stjórnar um vexti og arð af stofnsjóði.

9.  Kosin stjórn félagsins.

10. Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.

11. Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.

12. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.

Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. 

Tillögur:
Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði
15,86%  arður af B-deild stofnsjóðs, alls 28 milljónir króna (eða 0,16 kr. á
hvern útgefin hlut) og reiknaðir 10% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild
stofnsjóðs, alls 24 milljónir.  Arðleysisdagur er 31. mars og arðréttindadagur
er 2. apríl.  Greiðsludagur arðs er 30. apríl n.k.

Attachments

adalfundur ss 28 mar08.pdf