Ársreikningur Landsvirkjunar var í dag, þann 7. mars 2008 samþykktur á fundi stjórnar. Á árinu 2007 var hagnaður af rekstri samstæðu Landsvirkjunar 28,5 milljarðar króna. Í árslok námu heildareignir fyrirtækisins 318,8 milljörðum króna en eigið fé nam 99,2 milljörðum króna og jókst á árinu um 28,4 milljarða króna. Eiginfjárhlutfall er 31,1% í árslok 2007. Ársreikningur Landsvirkjunar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og er þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið gerir ársreikning sinn með þeim hætti. Heildaráhrif breyttra reikningsskila á eigið fé samstæðunnar eru þau að bókfært eigið fé í ársbyrjun 2007 hækkar um 8.127 milljónir króna eða úr 61.107 milljónum króna í 69.234 milljónir króna. Ársreikningar fyrirtækisins á undanförnum árum hafa verið gerðir í samræmi við íslenskar reiknings¬skilavenjur. Samanburðarfjárhæðum árið 2006 hefur verið breytt í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla en ársreikningar fyrri ára eru settir fram í samræmi við íslenskar reikningsskilavenjur. Helstu stærðir ársreiknings eru (í milljónum króna): Sjá viðhengi. Við gerð ársreiknings 2007 kom í ljós að leiðrétta þurfti áður gerða útreikninga vegna innbyggðra afleiða í raforkusamningum sem hafði í för með sér að fjárhæðir í endanlegum stofnefnahagsreikningi í ársbyrjun 2007 breyttust frá því sem áður hafði verið greint frá í árshlutareikningi fyrirtækisins fyrir tímabilið janúar til júní 2007. Leiðréttingin leiddi til lækkunar á eigin fé í ársbyrjun 2007 um 11,8 milljarða króna en hafði óveruleg áhrif á afkomu tímabilsins. Hagnaður jókst samtals um 17.465 milljónir króna miðað við fyrra ár. Aukning rekstrartekna var að verulegu leyti vegna sölu til Fjarðaáls sem hófst á árinu. Rekstrar¬kostnaður án afskrifta nam 6.559 milljónum króna en var 6.374 milljónir króna árið áður. Fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld námu 27.630 milljónum króna sem skýrist aðallega af gengishagnaði af langtímalánum og gangvirðisbreytingum afleiðusamninga. Gengishagnaðurinn og gangvirðisbreytingar eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins. Gengishagnaður langtímalána skýrist aðallega af hækkun á gengi íslensku krónunnar á árinu. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 4,69% á árinu 2007 en þeir voru um 4,63% árið áður. Í árslok 2007 voru rúm 80% langtímalána í erlendri mynt. Samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum er fyrirtækinu skylt að ákvarða starfrækslugjaldmiðil sinn og er niðurstaðan sú að Bandaríkjadalur verður ráðandi mynt fyrirtækisins frá og með árinu 2008. Árið 2007 er því síðasta árið sem íslenska krónan er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar. Á árinu 2003 hófust virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka í framhaldi af gerð orkusölusamnings við Fjarðaál, dótturfélag Alcoa. Þar hefur verið reist 690 MW aflstöð og jafnframt lagðar flutningslínur til Reyðarfjarðar. Fimm af sex vélum virkjunarinnar voru gangsettar á fjórða ársfjórðungi 2007 og sú sjötta í febrúar 2008. Nánari lýsing á framkvæmdum er að finna á heimasíðu virkjunarinnar www.karahnjukar.is. Í árslok 2007 nam byggingarkostnaður þess hluta Kárahnjúkavirkjunar sem ekki var kominn í rekstur samtals 13,2 milljörðum króna en 105,9 milljarðar króna eru færðir meðal aflstöðva fyrirtækisins auk 9,3 milljarða í flutningskerfi. Horfur um rekstur Landsvirkjunar eru góðar fyrir árið 2008. Fljótsdalsstöð var tekin í notkun á árinu 2007 og munu tekjur af raforkusölu til stóriðju auka heildartekjur fyrirtækisins umtalsvert. Gengisþróun og gangvirðisbreytingar á innbyggðum afleiðum mun þó eftir sem áður ráða miklu um afkomu ársins. Nánari upplýsingar veitir Kristján Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515 9000. Ársreikningur Landsvirkjunar verður lagður fyrir aðalfund fyrirtækisins 18. apríl nk.