Leiðrétting: Bætt við samanburðartölum í viðhengi. Stjórn Opin Kerfi Group hf hefur gengið frá ársreikningi félagsins fyrir tímabilið 1.janúar - 31.desember 2007 og hefur hann fengið fyrirvaralausa könnunaráritun löggiltra endurskoðenda þess. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla IFRS. Opin Kerfi Group hf Heildarvelta Opin Kerfi Group á árinu 2007 var 10.875 milljónir króna, samanborið við 13.100 milljónir króna árið 2006 þar af nemur hlutdeild aflagðrar starfsemi 2.432 milljónum króna á árinu 2007 og 3.248 milljónum króna á árinu 2006. Í október sendi félagið alla eignarhluti sína í Opin kerfi ehf. og eftir það eiga allar tekjur þess uppruna sinn í erlendri starfsemi félagsins en árinu áður var það hlutfall í kringum 75%. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var neikvæð um 155 milljónir króna samanborið við 150 milljónir í hagnað árið áður. Forráðamenn félagsins gera ráð fyrir að rekstur félagsins verði töluvert betri á yfirstandandi ári en á árinu 2007. Hagnaður samstæðunnar eftir skatta og óreglulega starfssemi var 169 milljónir króna á tímabilinu en var á fyrra ári 76 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall félagsins er 43,7% og arðsemi eigin fjár 9,0% sem er hærra en á fyrra ári. Fjöldi starfsmanna var á fyrri hluta ársins um 470 en er eftir sölu Opin Kerfi ehf á seinni helmingi ársins um 330 starfsmenn. Dótturfélög Opin Kerfi Group hf samanstendur í dag af móðurfélaginu, tveimur eignarhaldsfélögum og tveimur rekstrarfélögum sem eru Kerfi AB í Svíþjóð og Kerfi A/S í Danmörku. Á seinni helmingi ársins var rekstrarfélagið Opin Kerfi ehf á Íslandi selt frá móðurfélaginu og er ekki lengur hluti af Opin Kerfi Group hf. Kerfi AB Velta Kerfi AB í sænskum krónum talin hefur lækkað úr 716mkr í 645mkr. EBIDTA lækkaði verulega milli ára eða úr 14.7m SEK í -2,8m. Hér ræður helst skipti um forstjóra á árinu en af því hlaust töluverður kostnaður en ekki tókst að skera niður kostnað til samræmis við minnkandi veltu stórra viðskipavina félagsins. Horfur í Svíþjóð eru að tekjurnar muni aukast á árinu og er unnið að lækkun kostnaðar og endurskipulagningar í rekstri. Horfur er á að afkoman verði mun betri í ár. Stoðir félagsins voru styrktar með auknu framlagi frá móðurfélagi. 21.nóvember 2007 tók nýr forstjóri, Harri Kahkonen, til starfa. Kerfi A/S Velta Kerfi A/S hefur lækkað milli ára og er nú 2.394 milljónir króna en var á sama tímabili í fyrra 3.025 milljónir. EBITDA er neikvæð um 76milljónir króna en var á sama tímabili í fyrra jákvæð um 25milljónir. Miklar breytingar voru hjá fyrirtækinu á árinu, forstjórinn Carsten Egeberg sagði upp í júlí og kemur til með að starfa fyrir keppinaut nú þegar skyldum hans við fyrirtækið lýkur. Á tímabilinu fram til 1.febrúar gegndu 3 forstöðu í fyrirtækinu til skamms tíma eða allt þar til núverandi forstjóri var ráðinn hinn 1.febrúar sl. Gert er ráð fyrir betri afkomu í Danmörku á árinu og unnið er að stefnumótun og endurskipulagningu fyrirtækisins. Móðurfélagið styrkti stoðir félagsins með auknu framlagi á árinu. Forstjóri Kerfi A/S ráðinn 1.febrúar 2008, er Steen Louis Reinholdt Í stjórn Opin Kerfi Group hf sitja Þórdís Sigurðardóttir formaður, Aðalsteinn Valdimarsson, Soffía Lárusdóttir og Sveinn Andri Sveinsson. Elín Þórðardóttir er forstjóri Opin Kerfi Group hf (elintho@simnet.is) og veitir hún nánari upplýsingar í síma 898 6319
2007 - Leiðrétting - Frétt send 2008.03.06:15:13:26
| Source: OKG ehf.