Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Nýherja hf. og TM Software hf. Gengið var endanlega frá samningi um kaup Nýherja á öllu hlutafé í TM Software 25. janúar sl. og voru þau háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar í rekstrarþjónustu og hýsingu og þróun sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. TM Software er móðurfélag Skyggnis, Origo, Vigor, eMR og IPT. „Með TM Software innanborðs verður Nýherji enn betur í stakk búinn að veita viðskiptavinum heildarþjónustu í upplýsingatækni því til verður eitt fremsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins. Kaupin eru þar af leiðandi mikilvægur áfangi í þróun Nýherja og treystir enn frekar stöðu samstæðunnar á upplýsingatæknimarkaði,“ segir Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja. Eftir kaupin á TM Software eru yfir 730 starfmenn hjá samstæðu Nýherja í um 20 dótturfélögum á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi. Meðal einstakra dótturfélaga má nefna Applicon Holding ehf., Dansupport S/A og ParX ehf. Heildarvelta Nýherja og TM Software var um 13,7 milljarðar króna árið 2007. Hlutabréf í Nýherja eru skráð í OMX Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar veitir: Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma 893-3630 eða 569-7700.