- Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti - Stefnuyfirlýsing bankastjórnar


Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um
1,25 prósentur í 15%. Forsendur verðbólguspár sem birtist í Peningamálum í
nóvember sl. og fól í sér óbreytta stýrivexti fram á síðari helming þessa árs
hafa brugðist. 
 
Verðbólga hefur reynst mun meiri en spáð var og verðbólguvæntingar hafa vaxið.
Eftirspurn hefur einnig verið meiri en búist var við. Gengi krónunnar hefur
lækkað töluvert meira en reiknað var með í frá¬viksspánni sem birt var í
nóvemberhefti Peningamála. Í henni var gert ráð fyrir að brugðist yrði við
slíkri þróun með hækkun stýrivaxta. Raungengi krónunnar er nú mjög nærri
sögulegu lágmarki síðustu áratuga sem það náði í nóvember 2001. Gangi lækkunin
ekki til baka er einsýnt að verðbólga eykst mikið og langvarandi verðbólguvandi
væri fyrir stafni ef ekkert yrði að gert með tilheyrandi víxlhækkunum verðlags,
launa og gengis erlendra gjaldmiðla. Lækkun gengis krón¬unnar undanfarnar vikur
kemur einnig illa við efnahagsreikninga skuldsettra heimila og fyrirtækja, sem
grefur undan stöðugleika fjár¬málakerfisins til lengri tíma litið. Því er
mikilvægt að gengislækkunin gangi sem fyrst til baka. 

Versnandi fjármálaskilyrði í heiminum hafa leitt til þess að erfiðara er en
áður að fjármagna viðskiptahalla. Aðlögun í þjóðarbúskapnum með samdrætti
eftirspurnar verður því tæpast umflúin. Hún verður því sárs¬aukafyllri sem
verðbólga fær að leika lengur lausum hala. Því er óhjá¬kvæmilegt að reka áfram
mjög aðhaldssama peningastefnu þannig að böndum verði komið á verðbólgu og
verðbólguvæntingar og gengi krónunnar verði traustara í sessi. 

Fimmtudaginn 10. apríl n.k. gefur Seðlabankinn út Peningamál með nýrri
þjóðhags- og verðbólguspá. Um leið tilkynnir bankastjórn næstu ákvörðun sína um
vexti.