Hagnaður að upphæð kr. 64,3 milljónir krónur varð af rekstri Eignarhaldsfélagsins Bolar ehf. á árinu 2007 samanborið við 44,0 milljón króna tap árið áður. Endurskoðað uppgjör samstæðu Eignarhaldsfélagsins Bola ehf. fyrir árið 2007 var samþykkt á stjórnarfundi félagsins 28. mars 2008. Eftirfarandi tafla sýnir helstu niðurstöður úr samstæðureikningi Eignarhaldsfélagsins Bola ehf.: SJÁ VIÐHENGI. Rekstur samstæðu Eignarhaldsfélagsins Bolar ehf. samanstendur af tveim rekstrarfélögum Provinor AS, áður Sæplast Norge AS, og Sæplast Canada Inc. auk móðurfélagsins. Eins og fram kom í tilkynningu félagsins 30. mars 2007 þá var Sæplast Ålesund AS selt Promens hf. í upphafi árs og skýrir það lækkun rekstrartekna milli ára. Rekstur beggja dótturfélaganna gekk vel á árinu og voru rekstrartekjur þeirra ásamt tekjum af starfsemi móðurfélagsins 1.337,6 milljónir króna og hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 116,7 milljónir króna eða 8,7% og skiluðu bæði dótturfélögin jákvæðri EBITDA. Sambærileg EBITDA á síðasta ári var 123,8 milljónir króna eða 7,1%. Hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) var 38,5 milljónir króna eða 2,9% samanborið við 11,0 milljónir króna eða 0,6% árið áður. Hrein fjármagnsgjöld námu 95,6 milljónum króna, tap fyrir skatta var 57,1 milljónir króna. Félagið fjárfesti á árinu í dótturfélögum sem leiddi til tekjufærslu á skattaskuldbindingu sem áður hafði verið færð til skuldar vegna frestunar á söluhagnaði hlutabréfa. Tekjufærslan nam 121,5 milljónir króna á árinu. Hagnaður félagsins ársins eftir skatta var 64,3 milljónir króna Niðurstöður efnahagsreiknings eru 2.314,2 milljónir króna þar af eigið fé 748,6 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 32,4%. Það sem af er árinu hefur rekstur fyrirtækjanna gengið samkvæmt áætlun og eru horfur í rekstri þeirra ágætar. Nánari upplýsingar veitir Geir A. Gunnlaugsson í síma 580 5588 eða 892 8040.
2007
| Source: Eignarhaldsfélagið Bolar ehf.