Ársreikningur móðurfélags Straumborgar ehf. fyrir 2007 hefur verið staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins. Ársreikningur samstæðu er ekki tilbúinn þar sem töf hefur orðið á gerð ársreiknings eins dótturfélaga Straumborgar í Rússlandi. Búist er við að ársreikningur samstæðu verði tilbúinn fljótlega. Straumborg ehf. birtir nú í fyrsta skipti reikningsskil sín í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og hefur samanburðarfjárhæðum í ársreikningi verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur. Straumborg ehf. og dótturfélag þess Norvest ehf. voru sameinuð 1.1.2007. Vegna þessa hafa samanburðartölur verið teknar saman fyrir Straumborg ehf. og Norvest ehf. Slík samantekt gefur réttari mynd af þeim breytingum sem urðu árið 2007. Innleiðing alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS) hafði veruleg áhrif á reikninga félagsins. Matsbreyting á óskráðum eignum félagsins hafði þar mest áhrif. Rekstur Hagnaður Straumborgar ehf. árið 2007 var 2.380.413.307 króna en 6.193.743.738 króna árið 2006. Gangvirðisbreyting fjárfestinga var 6.867.858.868 krónur árið 2007 samanborið við 8.207.900.191 árið 2006. Efnahagur Heildareignir Straumborgar voru þann 31. desember 2007 bókfærðar á 56.389.431.790 króna. Eigið fé félagsins var á sama tíma 19.545.254.689 króna og hefur vaxið um 1.880.413.307 árið 2007 sem nemur hagnaði félagsins að frádreginni arðgreiðslu til hluthafa. Lykiltölur úr ársreikningi móðurfélags: Hagnaður eftir skatta: 2.380.413.307 kr. Heildareignir: 56.389.431.790 Eigið fé: 19.545.254.689 Eiginfjárhlutfall: 34,7% Staða og horfur Eignasafn félagsins er dreift og er megin hluti þess í óskráðum eignum. Rekstur félaga Straumborgar gengur með ágætum og er búist við að fjárfestingar félagsins haldi áfram að skila félaginu góðri ávöxtun. Lausafjárstaða Straumborgar er sterk. Frekari upplýsingar veitir Hjalti Baldursson, forstjóri Straumborgar í síma 575 2600.
2007
| Source: Straumborg ehf.