2007


Hagnaður af rekstri ÍAV hf. árið 2007 að teknu tilliti til skatta nam 429
milljónum króna. 

EBITDA  1.071 m.kr. og veltufé frá rekstri 906 m.kr.

Á stjórnarfundi Íslenskra aðalverktaka hf. þann 31. mars 2008 var ársreikningur
fyrir árið 2007 staðfestur.  Ársreikningur Íslenskra aðalverktaka hf. hefur að
geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess. 

Rekstur á árinu 2007

Rekstrartekjur samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. námu 15.589 milljónum króna
á árinu 2007.  Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) var
1.071 milljónir króna. 

Afskriftir ársins námu 324 milljónir króna.  Hagnaður fyrir fjármagnsliði og
skatta nam 747 milljónum króna á árinu.  Hagnaður félagsins fyrir skatta, að
teknu tilliti til fjármagnsliða nam 527 milljónum króna, en fjármagnsliðir voru
nettó neikvæðir um 220 milljónir króna.  Að teknu tilliti til reiknaðra skatta
nam hagnaður félagsins 429 milljónum króna á árinu 2007. 

Efnahagur
Heildareignir Íslenskra aðalverktaka hf. og dótturfélaga námu 9.512 milljónum
króna í lok desember  2007.  Heildarskuldir samstæðunnar voru 6.449 milljónir
króna og bókfært eigið fé þann 31. desember 2007 var 3.063 milljónir króna. 
Eiginfjárhlutfall var því 32%. 

Sjóðstreymi
Veltufé samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. frá rekstri á árinu 2007 var 906
milljónir króna.  Handbært fé í lok desember 2007 var 155 milljónir króna og
veltufjárhlutfall var 1,37. 


Starfsemi ÍAV árið 2007 / framtíðarhorfur
Á undanförnum mánuðum hefur orðið nokkur vöxtur á starfsemi félagsins á
almennum verktakamarkaði á sama tíma og dregið hefur úr áhrifum íbúðarbygginga
á rekstur félagsins.  Tekjur félagsins jukust um 17% á milli ára og gert er ráð
fyrir áframhaldandi vexti á starfsemi félagsins á árinu 2008. 
Vel gekk að afla félaginu nýrra verkefna á árinu 2007 auk þess sem áfram var
haldið með verkefni frá fyrra ári.  Verkefnastaða félagsins er góð. 

Stærsta einstaka verkefni félagins um þessar mundir er bygging tónlistar- og
ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn auk tengdra verkefna.  Félagið vinnur einnig
að nokkrum öðrum stórverkefnum, svo sem byggingu skrifstofu og vörugeymslu
fyrir Ölgerðina við Grjótháls, byggingu vélsmiðju í Hafnarfirði, bygging
Íþróttamiðstöðvar á Álftanesi auk fjölda annarra verkefna.  Helstu eigin
íbúðarbyggingar félagsins eru við Norðurbakka í Hafnarfirði, Hrólfsskálamel á
Seltjarnarnesi og Mánatún í Reykjavík.  Þá vinnur félagið að byggingu
skrifstofubyggingar við Glæsibæ.
 
Á næstu dögum verða undirritaðir samningar um byggingu Óshlíðarganga en ÍAV mun
vinna það verkefni í samstarfi við Marti Contractors LTD. frá Sviss. 

Verktakastarfsemi er líkt og önnur starfsemi háð ytri aðstæðu í þjóðarbúinu og
kemur aukin verðbólga og gengisfall íslensku krónunnar því til með að hafa
áhrif á rekstur ÍAV eins og annarra félaga hér á landi.  Stjórnendur ÍAV sjá þó
margvísleg tækifæri til áframhaldandi vaxtar og fjölþættingar á starfsemi
félagsins í framtíðinni. 

Hjá Íslenskum aðalverktökum hf. og dótturfélögum þess störfuðu að meðaltali 
668 starfsmenn á árinu 2007 auk starfsmanna undirverktaka sem skipta hundruðum.

Attachments

iav-2007-helstu tolur.pdf islenskir aalverktakar hf - 122007.pdf