Framsetning ársreiknings ICEQ verðbréfasjóðs er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2007 að fjárhæð 33 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ verðbréfasjóðs. • Eigið fé sjóðsins í lok árs 2007 nam 3.874 m.kr. skv. efnahagsreikningi. • Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. sem telur að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2007, efnahagi hans 31. desember 2007 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2007, í samræmi við lög um ársreikninga. Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili ICEQ verðbréfasjóðs, nam þann 31. desember 2007 4.862 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki er 58,6% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag í móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, Reykjavík. Nánari upplýsingar um ársreikning ICEQ verðbréfasjóðs og Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veita Ómar Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarfélagsins, og Sigþór Jónsson, sjóðsstjóri, í síma 444 6000.
- Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs á árinu 2007
| Source: Stefnir hf.