Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkunn Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf: langtímaeinkunn og almenn lán (e. senior unsecured debt) 'BBB-', skammtímaeinkunn 'F3', óháð einkunn 'C/D', stuðningseinkunn '3', stuðningseinkunnargólf '3', og víkjandi lán 'BB+'. Langtímahorfur eru stöðugar. Í tilkynningu frá Fitch segir að einkunnin endurspegli þá skoðun matsfyrirtækisins að þrátt fyrir áframhaldandi umrót á skuldabréfamarkaði og neikvæð viðhorf markaðsaðila gagnvart íslenskum aðilum geri lausafjárstaða Straums og viðráðanleg endurfjármögnunarþörf bankans að verkum að hann sé síður viðkvæmur en ella fyrir neikvæðri umræðu. Sjá tilkynningu frá Fitch Ratings í viðhengi.
FITCH staðfestir lánshæfiseinkunn Straums; horfur stöðugar
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.