Ársskýrsla 2007 og leiðrétting á ársreikningi: Meðfylgjandi er ársskýrsla Hitaveitu Suðurnesja hf. fyrir árið 2007. Eftirfarandi leiðrétting var gerð á skýringu 6 í ársreikningum, um starfsþáttayfirlit: Eingreiðslu frá Varnarliðinu, sem var öll færð til tekna undir liðnum "Heitt vatn - sala og dreifing", hefur nú verið skipt til jafns á "Framleiðslu" og "Heitt vatn - sala og dreifing". Vegna þessa hækka tekjur frá viðskiptamönnum um 311 millj. kr. í fyrrnefnda liðnum, en lækka jafn mikið í þeim síðarnefnda. Nánari upplýsingar veitir: Júlíus Jónsson Forstjóri Sími: 422 5200