Skammtímaeinkunn bankans staðfest Reykjavík 21. Apríl, 2008 - Lánshæfismatsfyrirtækið Standard og Poor's tilkynnti í dag að það hafi breytt langtíma lánshæfismatseinkunn Glitnis úr A- í BBB+, með neikvæðum horfum. Á sama tíma staðfesti S&P skammtímaeinkunn bankans A-2. Glitnir er eini bankinn á Íslandi sem er metin af S&P. „Þessi niðurstaða S&P endurspeglar fyrst og fremst þann óróleika sem ríkir alþjóðlegum fjármálamörkuðum og þeirrar óvissu sem gætir um þróun íslensks efnahagslífs á næstu misserum," segir Ingvar H. Ragnarsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar Glitnis. „Vegna viðvarandi óvissu á fjármálamörkuðum hafa lánshæfismatsfyrirtæki almennt verið að endurskoða afstöðu sína til banka og fjármálafyrirtækja víða um heim. Glitnir er í sterkri stöðu með stöðugan rekstur og trausta lausafjárstöðu." Tilkynningin S&P er í viðhengi. Glitnir birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2008 þann 7. maí n.k. Nánari upplýsingar veitar: Ingvar H. Ragnarsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar, sími 440 4665, farsími 844 4665, netfang: ingvar.ragnarsson@glitnir.is. Vala Pálsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími 440 4989, farsími 844 4989, netfang: vala.palsdottir@glitnir.is.
S&P breytir langtímalánshæfiseinkunn Glitnis
| Source: Glitnir banki hf.