- 2007


Þann 21. apríl 2008 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2007 tekinn til fyrri
umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á
tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 28. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2007 byggir á sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 


Helstu lykiltölur:
Sjá í meðfylgjandi fréttatilkynningu.


Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 687,1 millj. kr. samkvæmt
samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki,
en þar af námu rekstrartekjur bæjarsjóðs 627,8 millj. kr. 
Rekstrargjöld námu 684,5 millj. Þar af námu rekstrargjöld bæjarsjóðs 606,6
millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga starfsfólks að upphæð
24,8 m.kr. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var jákvæð um 21,2 millj.  samkvæmt
ársreikningi  en jákvæð um 2,6 millj. kr. í  samanteknum ársreikningi A og B
hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2007 nam, eftir að
lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 558,9 millj. kr. samkvæmt
efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 740,3 millj. kr. 

Rekstrarafkoma bæjarsjóðs Stykkishólmbæjar er jákvæð um 21,2 millj. kr.
Meginástæða eru fyrir þessu er: 

•  Auknar greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem námu um 69,1 milljónum
   meira en áætlun gerði ráð fyrir, en á móti kom hærri launagreiðslur m.a.
   vegna aukinnar þjónustu í Leikskólanum og Grunnskólanum, auk hækkun
   lífeyrisskuldbindinga starfsfólks um 24,8 milljónir kr.
   Lífeyrisskuldbindingar Stykkishólmsbæjar eru 177,8 milljónir samkvæmt
   útreikningum tryggingastærðfræðings. 


Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er
jákvæð um 2,6 millj. kr. Meginátæður eru fyrir þessu eru:

.  Hagnaður af Fasteignum Stykkishólms (FSH ehf) upp á 12,6 milljónir króna að
   stærstum hluta vegna eignasölu.
 	 
.  Hallarekstur hafnarsjóðs var 6,8 millj.kr. og stafar af minni umsvifum á
   höfn m.a. vegna algjörs stopp á hörpuskelveiðum sem staðið hefur yfir frá
   2002. 

.  Hallarekstur Fráveitu er 16,9 millj.kr. og skýrir aukin fjármagnskostnaður
   vegna aukinnar verðbólgu þennan halla að mestu leiti. 
	
Það sem er jákvætt við rekstur bæjarsjóðs er að handbært fé frá rekstri er 96,8
millj.kr., ef ekki yrði farið í fjárfestingar og engin ný lán tekin, þá tæki
það ekki nema 9,4 ár að greiða upp allar skuldir bæjarsjóðs Stykkishólmsbæjar. 

Fjárfestingar voru 126,2 milljónir króna og vegur fjárfesting í gatnagerð,
frágang á miðbæ og frágangur á lokaverkum  á nýjum glæsilegur leikskóla þyngst.
Auk þess voru fjárfest í íþróttamannvirkjum og lausamunum. 

Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var
0,43% á íbúðarhúsnæði. 

Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild
sinni verður birtur  á heimasíðu Stykkishólmbæjar. 

Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari,  í síma 433-8100

Attachments

frettatilkynning stykkisholmsbjar 2007.pdf stykkisholmsbr bjarsj-samsta 2007.pdf