Össur hf. - Kynningarfundur fyrir fjárfesta þriðjudaginn 29. April kl 12:00



Össur hf. birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2008 þriðjudaginn 29.
apríl, fyrir opnun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður  haldinn 29.
apríl  á Grand Hótel við Sigtún, Reykjavík og hefst kl. 12.00. Þar
mun Jón Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri,
kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku.

Sýnt verður beint frá fundinum á netinu á slóðinni
www.ossur.com/investors
 
Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í síma. Eftirfarandi eru
innhringinúmer fyrir fundinn:
Ísland: 800 8660
Evrópa: +44 (0)20 3043 2436
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
 
Kynningarefni verður aðgengilegt á heimasíðu Össurar:  www.ossur.com
Fréttavef Kauphallarinnar Nasdaq OMX:
www.omxnordicexchange.com/newsandstatistics/companynotices og á
www.huginonline.com