Landsbankinn kynnir fyrsta ársfjórðungsuppgjör 2008 þann 6. maí



Landsbankinn mun birta rekstrarniðurstöðu á fyrsta ársfjórðungi 2008
eftir lokun markaða þriðjudaginn 6. maí 2008.
 
Kynningarfundur í Reykjavík 6. maí
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar
Landsbankans, munu  kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni frá fundinum verður birt á sama tíma á vef
Landsbankans.
 
Tími: 17.00 ( 18.00 UK og 19.00 CET)
Staðsetning: Iðnó, Vonarstræti 3, Reykjavík
Skráning: Vinsamlegast skráið ykkur á afkomukynningu í Reykjavík hér:
http://www.landsbanki.is/skraning/3manadauppgjor2008
 
Kynningarfundur í London 7. maí
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar
Landsbankans, munu  kynna afkomu  bankans og svara fyrirspurnum. Hægt
verður að fylgjast með útsendingu af kynningunni á vef Landsbankans
www.landsbanki.com/ir en öll fundargögn verða birt þar á sama tíma.
 
Tími: 8:00 ( 9.00 UK og 10.00 CET)
Staðsetning: Beaufort House 15 St Botolph Street, London EC3A 7QR
Skráning: Vegna strangra öryggisstaðla er nauðsynlegt að gestir skrái
sig á http://www.landsbanki.is/english/registration/q12008results
 
Útsending og símafundur
Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í London geta séð kynninguna í
rauntíma á www.landsbanki.com/ir. Einnig verður hægt að hlusta á
fundinn símleiðis með því að hringja 10 mínútum fyrir fund í síma 
+44 (0) 1452 569 103.
 
Fundargögn og upptaka
Hægt verður að nálgast fundargögn ásamt hljóð- og myndupptöku af
kynningunni á www.landsbanki.com/ir að fundi loknum.
 
Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy,
í gegnum tölvupóst, ir@landsbanki.is, eða síma 410-7200 / 861-1440.