Össur hf. - Uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2008



Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2008

  * Sala var 89,8 milljónir Bandaríkjadala
  * Söluaukning vegna innri vaxtar var 12%
  * EBITDA var 23 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 124% frá sama
    tímabili 2007
  * EBITDA leiðrétt var 17,4 milljónir, jókst um 51% frá sama
    tímabili 2007
  * Hagnaður tímabilsins var 6,7 milljónir Bandaríkjadala, samanborið
    við 2,7 milljóna tap á sama tímabili árið 2007
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
    tilliti til kauprétta var 2,98 bandarísk sent, jókst um 231% frá
    sama tímabili 2007
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 1,58 bandarísk
    sent, samanborið við -0,70 bandarísk sent á sama tímabili árið
    2007

 
Jón Sigurðsson, forstjóri:"Við erum ánægð með niðurstöður  fyrsta ársfjórðungs. Evrópa og  Asía
sýna mjög góðan vöxt, bæði í stoðtækjum og spelkum og stuðningsvörum.
Salan á stoðtækjum heldur áfram að vaxa umfram vöxt markaðarins,  sem
staðfestir sterka stöðu Össurar á þessum markaði. Salan á spelkum  og
stuðningsvörum í  Bandaríkjunum  er  minni  en  vonir  stóðu  til  en
stjórnendur hafa  trú á  því að  viðsnúningur sé  í sjónmáli.  Helstu
áherslur ársins  2008 eru  að auka  arðsemi, áframhaldandi  nýting  á
dreifileiðum fyrirtækisins fyrir  nýjar vörur,  sem og  að hagræða  í
vörulínu fyrirtækisins  í spelkum  og stuðningsvörum.  Nú þegar  hafa
verið sett af stað mikilvæg verkefni þessu til stuðnings."
 
 
Live comments form the CEO, see link here below:
www.ossur.com/ceocomments
 

Attachments

Ossur Q1 2008 afkomufrett Ossur hf Q1 2008 Financial Statement Ossur Q1 2008 Market Presentation