• Stofnar nýja ferðaskrifstofu fyrir íslenska markaðinn • Áhersla á sumar- og vetrarleyfisferðir Íslendinga og móttöku erlendra ferðamanna • Hörður Gunnarsson, fyrrv. frkstj. Ferðaskrifstofu Íslands gengur til liðs við Icelandair Group Icelandair Group hefur ákveðið að efla ferðaþjónustustarfsemi innan félagsins og hefur ráðið Hörð Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Ferðsskrifstofu Íslands til stjórnarsetu í félögum innan Icelandair Group. "Við sjáum mikil tækifæri fyrir Icelandair Group á þessum markaði og teljum okkur hafa þekkingu, reynslu og tækjakost til þess að geta á stuttum tíma náð góðum árangri og markaðshlutdeild. Innan Icelandair Group hefur hingað til ekki verið lögð áhersla á almenna ferðaskrifstofustarfsemi eða að bjóða þjónustu fyrir Íslendinga á leið í frí með leiguflugi. Hörður Gunnarsson er þrautreyndur á þessu sviði og honum er ætlað stýra uppbyggingu þessarar starfsemi innan Icelandair Group. Við sjáum fyrir okkur ýmiskonar samlegðaráhrif innan samstæðunnar í skipulagningu ferða utan- sem innanlands m.a. í nýtingu á flugvélum", segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Hörður mun taka sæti í stjórnum félaga sem lúta að ferðaþjónustustarfsemi Icelandair Group og mun meðal annars gegna stjórnarformennsku í Iceland Travel sem er sérhæft þjónustufyrirtæki í mótttöku erlendra ferðamanna. Hörður mun vinna að því með núverandi stjórnendum að útvíkka ferðaþjónustustarfsemi Icelandair Group bæði í mótttöku erlendra ferðamanna og skipulagningu ferða fyrir Íslendinga og mun Iceland Travel, eða dótturfyrirtæki þess, taka að sér framleiðslu á skipulögðum hópferðum fyrir Íslendinga í afþreyingarferðir. Hörður lauk prófi í viðskiptafræðum við HÍ 1981 og löggildingu í endurskoðun 1983. Hörður hefur lengst af starfað við ferðaþjónustu ma sem framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands í fimmtán ár frá des 1990 til jan 2006. Hörður er giftur Hrönn Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn.