Source: Icelandair Group hf.

Leiðrétting - Ráðnir framkvæmdastjórar hjá Icelandair Group - Frétt birt 2008-05-08 11:11:51 CEST

Leiðrétting - texta á ensku skipt út fyrir texta á íslensku.

Árni Hermannsson og Erlendur Svavarsson hafa verið ráðnir framkvæmdastjórar á
sviði leiguflugs og flugvélaviðskipta hjá Icelandair Group. Til þessa sviðs
heyra fimm fyrirtæki, Loftleiðir-Icelandic, Bláfugl, Icelease, Travelservice í
Tékklandi og Latcharter í Lettlandi, og munu þeir Árni og Erlendur sinna
samræmingar- og stefnumótunarverkefnum á sviðinu. Árni mun jafnframt áfram
gegna stöðu fjármálastjóra Loftleiða-Icelandic, en hann hefur gegnt því starfi
frá árinu 2002. Erlendur hefur starfað hjá Icelandair Group og forverum þess
frá árinu 2003, og var áður sölu- og markaðsstjóri Loftleiða-Icelandic.