- Gunnar Már Sigurfinnsson ráðinn framkvæmdastjóri Icelandair Cargo


Gunnar Már Sigurfinnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandair Cargo
og tekur við starfinu af Pétri J. Eiríkssyni. Gunnar Már hefur verið
framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs Icelandair undanfarin þrjú ár. 

"Icelandair Cargo er öflugt fyrirtæki á sínu sviði og það er spennandi tækifæri
fyrir mig að vinna með frábæru starfsfólki þess að framtíðaruppbyggingu
fyrirtækisins. Ég þakka jafnframt samstarfsfólki mínu hjá Icelandair fyrir
samstarfið og óska eftirmanni mínum þar alls hins besta", segir Gunnar Már
Sigurfinnsson. 

"Gunnar Már hefur stýrt sölu og markaðsmálum Icelandair á undanförnum árum af
festu og það er Icelandair Group mikilvægt að fá nú að njóta krafta hans sem
framkvæmdastjóra Icelandair Cargo. Þar bíða krefjandi verkefni í ljósi óvissu í
efnahagsmálum og við væntum mikils af störfum hans þar", segir Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. 

Áður en Gunnar varð framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs Icelandair var hann
svæðisstjóri félagsins í Mið-Evrópu með aðsetur í Frankfurt og gengdi áður
ýmsum störfum hjá félaginu, m.a. sem sölustjóri Flugfélags Íslands. Hann er 43
ára viðskiptafræðingur frá HÍ, er kvæntur Lindu Hængsdóttur og eiga þau tvö
börn.