- Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri Icelandair


Birkir Hólm Guðnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandair. Hann hefur
starfað hjá félaginu um árabil, nú síðast sem svæðisstjóri þess á Norðurlöndum,
með aðsetur í Kaupmannahöfn. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group,
hefur að undanförnu einnig stýrt Icelandair, en lætur nú af því starfi og
einbeitir sér að stjórnun Icelandair Group. 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir krefjandi verkefni
bíða nýs framkvæmdastjóra Icelandair. " Icelandair er eitt af stærstu
fyrirtækjum á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi.
Birkir er kröftugur stjórnandi sem gjörþekkir starfsemi Icelandair og hefur
fjölþætta reynslu úr starfsemi félagsins hér á landi og erlendis. Ég treysti
honum og samstarfsfólki hans hjá Icelandair til þess leiða fyrirtækið og þróa í
takt við þær breytingar sem jafnan eru í umhverfi okkar. Nú eru blikur á lofti
í alþjóðafluginu bæði vegna eldsneytisverðhækkana og eftirspurnar í tengslum
við óvissu í efnahagsmálum og því þörf á að taka flugrekstur föstum tökum." 

Birkir Hólm Guðnason segist hlakka til að taka til starfa. "Ég lít á það sem
mikinn heiður að fá að leiða Icelandair. Ég hef starfað víða innan
fyrirtækisins og veit að innan þess er margt frábært starfsfólk sem ég hlakka
til að vinna með. Stóra verkefnið sem við blasir er að reka félagið með góðri
arðsemi við þær krefjandi aðstæður sem nú ríkja. Það er spennandi verkefni sem
gaman verður að fást við með samstarfsfólki mínu." 

Birkir er 34 ára gamall, hann lauk BS og mastersnámi í viðskiptafræðum frá
Álaborgarháskóla árið 2000 og hefur starfað hjá Icelandair síðan, Fyrst sem
sölustjóri á Íslandi, þá sem sölustjóri í Norður-Ameríku, síðan svæðisstjóri í
Mið-Evrípu með aðsetur í Frankfurt, og frá 2006 sem svæðisstjóri Icelandair á
norðurlöndunum, með aðsetur í Kaupmannahöfn. Hann er í sambúð með  Fríðu Dóru
Steindórsdóttur flugfreyju og hjúkrunarnema og á þrjú börn.