Á 265. fundi bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar þann 7. maí 2008 fór fram fyrri umræða um ársreikning Sandgerðisbæjar. Þann 21. maí 2008 fer seinni umræðan fram. Ársreikningur Sandgerðisbæjar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga, reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga. Starfsemi Sandgerðisbæjar er skipt í tvo hluta. Annars vegar A hluta sem er starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum og hins vegar B hluta sem eru fyrirtæki að hálfu eða meirihluta í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2006 námu 879,9 millj. kr. en á árinu 2007 urðu þær 973,5 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 866,8 millj. kr. Álagningarhlutfall útsvars var 12,7% en lögbundið hámark þess er 13,03%. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins, samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta, var jákvæð um 2.058,5 millj. kr., en í A hluta námu tekjur umfram gjöld 2.145,2 millj. kr. Tekjufærsla söluhagnaðar vegna eignarhluta í Hitaveitu Suðurnesja hf. nam 2.045,7 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2007 nam 2.525,7 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta 2.965,9 millj. kr. Laun og launatengd gjöld hjá samstæðunni voru 522,4 millj. kr. Fjöldi starfsmanna var 145 á árinu í 119 stöðugilum. Skatttekjur sveitafélagsins voru 453 þús. kr. á hvern íbúa. Á árinu 2007 var unnið mikið að gatnagerð í nýjum hverfum bæjarins auk þess sem hluti Strandgötunnar var endurnýjaður. Unnið var við frágang lóðar og skrúðgarðs við stjórnsýsluhús bæjarins. Undanfarin ár hefur verið mikil fjölgun íbúa í Sandgerðisbæ. Búist er við að íbúum haldi áfram að fjölga á næstu árum. Mikil uppbygging er í sveitarfélaginu hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Fjöldi íbúða er í byggingu og eru áfram miklar framkvæmdir við vegagerð samfara uppbyggingunni í bæjarfélaginu. Á árinu 2007 hefur verið unnið að viðbyggingu við íþróttahús og nýbyggingu 25m útisundlaugar í samvinnu við Fasteign og lýkur þeirri framkvæmd á árinu 2008. Á árinu 2008 verður byggð ný deild við leikskólann, grunnskólinn stækkaður og mikil uppbygging verður á íþróttasvæðum bæjarins m.a. byggt fjönotahús og golfvöllurinn stækkaður. Hagrætt hefur verið í rekstri Sandgerðishafnar á undanförnum árum. Rekstrarniðurstaðan batnar en er samt neikvæð um 27,4 millj. kr. Höfnin er sem fyrr mjög skuldsett og þeim skuldum fylgir mikill fjármagnskostnaður. Stofnaður hefur verið sérstakur sjóður innan A hluta bæjarsjóðs sem heldur utan um hagnaðinn af sölu á hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja. Raunávöxun sjóðsins mun verða nýtt árlega í þágu íbúa sveitarfélagsins en verðbættur höfustóll geymdur til ávöxtunar. Lykiltölur: Sjá í meðfylgjandi viðhengi