Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2008 * Heildarvelta félagsins var 14 milljarðar króna og jókst um 18% frá sama tíma í fyrra * Vegna árstíðasveiflu í flugi og ferðaþjónustu er afkoma jafnan neikvæð á fyrsta ársfjórðungi og nú var EBITDA neikvæð um 857 milljónir króna * EBIT var neikvæð um 1,7 milljarða króna * Tap eftir skatta var 1,7 milljarðar króna, en var 1,2 milljarðar króna á sama tíma í fyrra * Enginn söluhagnaður færður til tekna á fyrsta ársfjórðungi 2008 en var 1,2 milljarður króna á sama tíma í fyrra. * Grunnrekstur styrkist * Eignir voru 73,8 milljarðar króna í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 66,8 milljarða í lok árs 2007 * Eiginfjárhlutfall var 34% * Handbært fé frá rekstri var 3,1 milljarður króna * Skipulag Icelandair Group hefur verið einfaldað, Sigþór Einarsson verður aðstoðarforstjóri * Nýir stjórnendur teknir við hjá Icelandair og breytingarverkefnum hrint í framkvæmd * Fyrsta Boeing 787 Dreamliner breiðþotan leigð út Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group: „Rekstur Icelandair Group á fyrsta ársfjórðungi er nokkru betri en við gerðum ráð fyrir, í mun erfiðara árferði en á síðasta ári. Eldsneytiskostnaður félagsins hefur aukist um tæpan einn milljarð króna frá sama tíma 2007, auk þess sem að á fyrsta ársfjórðungi í fyrra var færður til bókar tæplega 1,2 milljarða króna söluhagnaður eigna. Verkefnastaða okkar í leiguflugsviðskiptum er góð sem og bókunarstaða í áætlunarflugi. En við sjáum fram á viðvarandi hátt eldsneytisverð og gerum ráð fyrir að það muni, ásamt ótryggu efnahagsástandi, hafa áhrif á eftirspurn í flugi og ferðaþjónustu. Eitt helsta viðfangsefni okkar nú er að fást við þessar breyttu aðstæður og gera félagið í stakk búið til að takast á við nýja framtíð. Við erum að laga fyrirtækin innan Icelandair Group að þessum veruleika, auka snerpu þeirra og sveigjanleika. Við höfum einfaldað skipulag samstæðunnar og Sigþór Einarsson verður aðstoðarforstjóri. Nýráðinn framkvæmdastjóri Icelandair, Birkir Hólm Guðnason, hefur nú þegar gert breytingar innan Icelandair og mun halda þeim áfram. Samið hefur verið um útleigu á fyrstu Boeing 787 Dreamliner breiðþotunni sem félagið á í pöntun. Fallið hefur verið frá vaxtaráformum hjá Icelandair Cargo. Ákveðið hefur verið að félagið hasli sér völl á ný í ferðaskrifstofurekstri. Samið hefur verið við flugstéttir til skamms tíma. Með þessum aðgerðum og fleirum erum við að treysta grunnrekstur okkar, draga úr áhættu og styrkja Icelandair Group til framtíðar“.