Orkuveita Reykjavíkur var rekin með 17,2 milljarða króna halla fyrstu þrjá mánuði ársins. Óhagstæð gengisþróun skýrir niðurstöðuna alfarið. Tekjur fyrirtækisins jukust um 480 milljónir miðað við sömu mánuði ársins 2007. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var 3,4 milljarðar króna samanborið við 2,6 milljarða króna rekstrarhagnað á sama tímabili árið áður. Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi 31. Mars 2008 Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 17.243 milljóna króna halla á fyrstu þrem mánuðum ársins samanborið við 4.331 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið áður. Rekstrartekjur fyrstu þrjá mánuði ársins námu 6.079 milljónum króna en voru 5.599 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var 3.400 milljónir króna samanborið við 2.952 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 22.729 milljónir króna á tímabilinu, en voru jákvæðir um 3.483 milljónir króna á sama tímabili árið 2007. Heildareignir þann 31. mars 2008 voru 208.991 milljón króna en voru 191.491 milljón króna í árslok 2007. Eigið fé þann 31. mars 2008 var 71.361 milljón króna en var 88.988 milljónir króna í árslok árið 2007. Heildarskuldir félagsins þann 31. mars 2008 voru 137.630 milljónir króna samanborið við 102.503 milljónir króna í árslok 2007. Eiginfjárhlutfall var 34,1% þann 31. mars 2008 en var 46,5% í árslok 2007. Með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja varð fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. Laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Lögin komu til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006. Sá hluti starfsemi OR er lýtur að rekstri vatnsveitu og fráveitu er þó áfram undanskilin tekjuskatti. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld voru neikvæð um 22,7 milljarða króna en jákvæðir um 3,5 milljarða króna á sama tímabili árið 2007. Neikvæð staða vegna gengismunar og gjaldmiðlasamninga nam 26,7 milljörðum króna á tímabilinu en gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða í raforkusölusamningum skiluðu 5,2 milljarða króna hagnaði á sama tíma. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Horfur Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2008. Umsvif fara vaxandi og fjárfestingar eru miklar. Stærsta einstaka verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins, og hafa fyrstu tveir áfangar hennar þegar verið teknir í notkun. Orkuveita Reykjavíkur - árshlutauppgjör Allar tölur eru í millj. kr. 2008 2007 Rekstrarreikningur 1.1-31.3 1.1-31.3 Rekstrartekjur 6.079 5.599 Rekstrargjöld (2.679) (2.647) Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA) 3.400 2.952 Afskriftir (1.632) (1.375) Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (22.729) 3.483 Áhrif hlutdeildarfélaga 42 0 (Tap) hagnaður fyrir skatta (20.919) 5.060 Tekjuskattur 3.676 (729) (Tap) hagnaður tímabilsins (17.243) 4.331 Skipting (taps) hagnaðar Eigendur móðurfyrirtækisins (17.220) 4.329 Hlutdeild minnihluta (23) 2 (Tap) hagnaður tímabilsins (17.243) 4.331 Handbært fé frá rekstri 736 1.601 Efnahagsreikningur 31.03.08 31.12.07 Fastafjármunir 192.841 183.097 Veltufjármunir 16.151 8.394 Eignir 208.991 191.491 Eigið fé 71.361 88.988 Langtímaskuldir og skuldbindingar 128.721 93.205 Skammtímaskuldir 8.909 9.298 Eigið fé og skuldir 208.991 191.491 Kennitölur: Veltufjárhlutfall 1,81 0,90 Eiginfjárhlutfall 34,1% 46,5%