• Tap Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. október 2007 til 31. mars 2008 nam kr. 169 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. október 2006 til 31. mars 2007 nam 89 m.kr. Tap Spalar eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1.janúar 2008 til 31. mars 2008 nam 146 m.kr. Á sama tíma árið á undan var hagnaður félagsins 67 m.kr. Reikningsár Spalar er 1.október til 30.september ár hvert. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. • Veggjald nam 397 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 399 m.kr. árið áður sem er0,5% lækkun. • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam kr. 167 m.kr. og hækkarum rúm 53% frá sama tímabili árinu áður þegar hann nam 109 m.kr. Mismunurinn liggur nánastallur í gjaldfærslu á undirbúningskostnaði vegna nýrra ganga. • Skuldir Spalar ehf aukast úr 4.405 m.kr. þann 30.september 2007 í 4.748 m.kr þann 31.mars 2008 eða um 7,79%. Um uppgjörið Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu vel í takt við áætlanir félagsins. Framundan eru umferðarmestu mánuðir ársins sem að öllu jöfnu eru með um 60% af tekjunum. Hins vegar var jafnmikil hækkun reikningslegra gjaldfærslna vegna hækkunar lána út af vísitöluhækkunum og gengisbreytingum ekki fyrirséð. Tímabilið frá 1. október 2007 til 31. mars 2008 er byrjun á tíunda fjárhagsári félagsins. Á þessu tímabili fóru um 840 þúsund ökutæki um göngin, sem greiddu veggjald sem er um 6,2% aukning frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi samsvarar því um 4.610 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin fara lækkandi, bæði að nafnverði og raunvirði. Skýringin er einkum sú að fleiri viðskiptavinir nýta sér afsláttarmöguleika auk þess sem gjaldið hefur lækkað umtalsvert síðustu árin. Sjá lykiltölur í meðfylgjandi skjali _____________________________________________________________________ Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.