- Hagar hf. ársuppgjör 29. febrúar 2008


Ársreikningur Haga hf. 

Ársreikningur félagsins hefur að geyma samstæðureikning félagsins og
dótturfélaga þess og er nú í fyrsta sinn gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS). Innleiðing staðlanna hefur óveruleg áhrif á
reikningsskil félagsins. Ársreikningur félagsins var samþykktur af stjórn og
forstjóra félagsins 29. maí 2008.  Stjórn leggur til að ekki verði greiddur út
arður til hluthafa vegna ársins 2007/08. 


Lykiltölur - samstæða

•  Hagnaður ársins 2007/08 nam 527 millj. kr. en hagnaður nam 551 millj. kr.
   árið áður. 

•  Rekstrartekjur ársins námu 52.210 millj. kr. en námu 46.513 millj. kr. árið
   áður. 

•  Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 2.906 millj.
   kr. en nam 2.074 millj. kr. árið áður. 

•  Heildareignir samstæðunnar námu 27.995 millj. kr. í lok reikningsársins en
   námu 23.616 millj. kr. árið áður. 

•  Eigið fé félagsins nam 8.808 millj. kr. í lok reikningsársins en nam 6.538
   millj. kr árið áður. 

•  Eiginfjárhlutfall félagsins var 31,5% í lok reikningsársins.


Fyrirtæki Haga eru eftirfarandi:

Bónus     Debenhams				
Hagkauk   Ferskar kjötvörur				
10-11     Noron (Zara)
Aðföng    Res
Hýsing    Íshöfn
Útilíf    Bananar
				
Hlutdeildarfélög eru:  Max og SMS p/f				
				
Stöðugildi hjá félaginu í lok reikningsársins námu 1.627


Endurskoðun
Ársreikningurinn hefur verið áritaður af endurskoðendum félagsins.

Staða og horfur
Horfur í rekstri félagsins eru góðar.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins í síma 530 5500

Attachments

hagar.pdf frettatilkynning hagar 29 2  2008.pdf