Samningar hafa tekist milli Nýsis hf., B.P. Skipa útgerð ehf., eigenda franska fyrirtækisins Seafood Export og fjárfesta í Marokkó um að auka hlutafé Sæblóms úr 4 m kr. í 374 m kr. Eftir þá aukningu á B.P. Skip útgerð meirihluta í félaginu og Nýsir tæplega þriðjungs hlut. Nýr framkvæmdarstjóri félagsins er Björgvin Ólafsson. Dótturfélag Sæblóms, Fleur de Mer, gerir út 3 fiskiskip og starfrækir nokkur fiskvinnsluhús í Laayoune í Marokkó. Skipin eru Quo Vadis (áður Örninn KE), Carpe Diem (áður Álfsey VE) og Que Sera Sera (keypt frá Skotlandi). Félagið ræður yfir miklum aflaheimildum sem það leigir af samstarfsaðilum sínum í Marokkó. Helstu afurðir félagsins eru makríll og sardínur sem mikil eftirspurn er eftir um þessar mundir og markaðsverðið hátt.
- Nýsir eignast tæplega þriðjungs hlut í Sæblómi hf.
| Source: Nýsir hf.