- Samsetning Úrvalsvísitölunnar fyrir tímabilið 1. júlí 2008 til 31. desember 2008


Valið hefur verið í Úrvalsvísitöluna (OMXI15) fyrir tímabilið 1. júlí 2008 til
31. desember 2008. Alfesca hf. er eina félagið sem kemur inn í vísitöluna að
þessu sinni, sem ekki var hluti af síðasta vali. Eins og við síðasta val eru
félögin einungis 14 sökum þess að Føroya Banki P/F (FO-BANK), sem að öðru jöfnu
hefði verið 15. félagið, uppfyllti ekki verðbilsskilyrði vísitölunnar. 

 

Valið í Úrvalsvísitöluna byggir á gögnum um viðskipti frá tímabilinu 1.
desember 2007 til 31. maí 2008. Flot er reiknað miðað við lista yfir 10 stærstu
hluthafa í lok tímabilsins og er markaðsvirði félaganna leiðrétt samkvæmt því. 

Attachments

frett enska.pdf