- Fréttatilkynning frá Nýsi hf. vegna víxla og/eða skuldabréfaflokka sem skráð eru hjá Nasdaq OMX á Íslandi


Að undanförnu hafa forvarsmenn Nýsis hf . unnið að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækisins og hafa af því tilefni gert samning við
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands um ráðgjöf í tengslum við þá vinnu. 

Nýsir er útgefandi eftirfarandi markaðsbréfa sem eru á gjalddaga á fyrstu sex
mánuðum þessa árs:   NYSI 08 319  (gjalddagi 19.  mars 2008) og NYSI 08 0425 (
gjalddagi 25. apríl 2008).  Á grundvelli samkomulags við eigendur ofangreindra
markaðsbréfa hafa átt sér stað viðræður um uppgjör krafnanna og af hálfu
félagsins er að því stefnt, að niðurstaða náist innan fárra vikna. Jafnframt er
stefnt að samkomulagi við eigendur markaðaflokkanna  NYSI 03 1, NYSI 05 1, NYSI
06 1. 

Gert er ráð fyrir því að full endurskipulagning félagsins  muni taka lengri
tíma. 
 
Hafnarfirði 16. júní 2008

Nýsir hf 
Reykjavíkurvegi 74
220 Hafnarfjörður