- Lokið er útboði á samningsbundnum sértryggðum skuldabréfum



Kaupþing banki hf. tilkynnir niðurstöðu í útboði samningsbundinna
sértryggðra skuldabréfa (Structured Covered Bonds), dags. 27. júní
2008. Alls bárust tilboð að nafnvirði 6,2 milljarður króna. Ákveðið
var að taka tilboðum í samningsbundin sértryggð skuldabréf:

- KAU CB1 að nafnvirði 0,4 milljarðar króna, vegin áv.krafa er 5,30%
- KAU CB2 að nafnvirði 4,4 milljarðar króna, vegin áv.krafa er 5,17%

Uppgjörsdagur viðskiptanna er 2. júlí 2008.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi, í
síma 444 6775.