Breytingar á framkvæmdastjórn Straums



Í kjölfar þess að Benedikt Gíslason var ráðinn framkvæmdastjóri
Markaðsviðskipta, Eigin viðskipta og Fjárfestingasviðs
Straums-Burðaráss fjárfestingabanka, og tók jafnframt sæti í
framkvæmdastjórn bankans, hafa verið gerðar breytingar á
framkvæmdastjórninni sem felast í því að Fredrik Sjöstrand og
Flemming Bendsen eiga frá og með deginum í dag ekki lengur sæti í
framkvæmdastjórn.

Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Teitur Guðnason
fjölmiðlafulltrúi
netfang: olafur.gudnason@straumur.net
sími: 858 6778