Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. ("Straumur") birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2008 miðvikudaginn 30. júlí næstkomandi. Athygli er vakin á að um er að ræða breytingu frá áður auglýstri dagsetingu, sem var 31. júlí. Kynningarfundur verður haldinn sama dag á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2 í sal H&I. William Fall forstjóri og Stephen Jack fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku. Fundurinn hefst klukkan 9:30 en boðið verður upp á léttar veitingar frá 9:00. Dagskrá: 9:00 Húsið opnar og boðið upp á léttar veitingar 9:30 William Fall forstjóri og Stephen Jack fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum úr sal 10:30 Fundarlok Fundarstjóri er Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs. Hægt verður að nálgast kynningarefni sem birt verður á fundinum á vef Straums, www.straumur.com, að fundinum loknum. Fundurinn verður sendur út beint á netinu á slóðinni www.straumur.com/webcast. Einnig verður hægt að horfa á upptökuna eftir fundinn. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen Forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs netfang: georg.andersen@straumur.net sími: 585 6707 farsími: 858 6707
Kynning á afkomu Straums á öðrum ársfjórðungi 2008
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.