Landsbankinn kynnir annað ársfjórðungsuppgjör 2008 þann 29. júlí



Landsbankinn mun birta rekstrarniðurstöðu á öðrum ársfjórðungi 2008
fyrir opnun markaða þriðjudaginn 29. júlí 2008.

Kynningarfundur í Reykjavík 29. júlí
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar
Landsbankans, munu  kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni frá fundinum verður birt á sama tíma á vef
Landsbankans.

Tími: 8.30 ( 9.30 UK og 10.30 CET)
Staðsetning: Hilton Nordica Hotel
Skráning: Vinsamlegast skráið ykkur á afkomukynningu í Reykjavík hér:
http://www.landsbanki.is/skraning/6manadauppgjor2008


Kynningarfundur í London 29. júlí
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar
Landsbankans, munu  kynna afkomu  bankans og svara fyrirspurnum. Hægt
verður að fylgjast með útsendingu af kynningunni á vef Landsbankans
www.landsbanki.com/ir en öll fundargögn verða birt þar á sama tíma.

Tími: 15:00 ( 16.00 UK og 17.00 CET)
Staðsetning: Beaufort House 15 St Botolph Street, London EC3A 7QR
Skráning: Vegna öryggisráðstafanna er nauðsynlegt að gestir skrái sig
á http://www.landsbanki.is/english/registration/q22008results

Útsending og símafundur
Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í London geta séð kynninguna í
rauntíma á www.landsbanki.com/ir. Einnig verður hægt að hlusta á
fundinn símleiðis með því að hringja 10 mínútum fyrir fund í síma
+44 (0) 1452 569 103.

Fundargögn og upptaka
Hægt verður að nálgast fundargögn ásamt hljóð- og myndupptöku af
kynningunni á www.landsbanki.com/ir að fundi loknum.

Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy,
í gegnum tölvupóst, ir@landsbanki.is, eða síma 410-7200 / 861-1440.