Glitnir kynnir uppgjör annars ársfjórðungs 2008



Eftirfarandi kynningar  og símafundir  verða haldnir  í tengslum  við
afkomu Glitnis  á  2.  ársfjórðungi  2008.  Hægt  verður  að  nálgast
uppgjörið á heimasíðu bankans www.glitnir.is frá og með kl 7:30 þann
1. ágúst.

Kynning í Reykjavík
Lárus Welding, forstjóri Glitnis, kynnir uppgjörið fyrir hluthöfum og
markaðsaðilum kl. 9:00, föstudaginn 1. ágúst á Nordica Hilton
hótelinu (salir  H og I). Fundurinn fer fram á ensku.

Fylgjast  má  með  fundinum  beint  á  Netinu  á  heimasíðu  Glitnis,
www.glitnir.is. Jafnframt verður hægt að senda spurningar á fundinn.

Kynning í London
Lárus Welding forstjóri og Rósant Már Torfason fjármálastjóri kynna
uppgjörið fyrir markaðsaðilum þriðjudaginn 5. ágúst kl. 16 að
staðartíma. Fundurinn fer fram í Great Eastern salnum á Andaz
hótelinu, 40 Liverpool Street, London EC2M 7QN. Þátttakendur eru
vinsamlega beðnir að skrá sig með tölvupósti á IR@glitnir.is

Bókun fjölmiðlaviðtala
Til að bóka fjölmiðlaviðtöl, vinsamlegast hafið samband við Má
Másson, forstöðumann kynningarmála á Íslandi, með því að senda
tölvupóst til mar.masson@glitnir.is eða hringja í síma 440 4990.

Frekari upplýsingar veitir:
Sigrún Hjartardóttir
Forstöðumaður fjárfestatengsla
sími 440 4748 eða í gegnum netfang sigrun.hjartardottir@glitnir.is