- Kynningarfundur vegna afkomu Kaupþings banka á öðrum ársfjórðungi



Kaupþing banki hf. birtir afkomu annars ársfjórðungs 2008
fimmtudaginn 31. júlí fyrir opnun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn í
Reykjavík 31. júlí í höfuðstöðvum Kaupþings, Borgartúni 19, og hefst
hann kl. 08.30. Þar mun Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings,
kynna afkomu bankans og svara spurningum. Kynningin verður á ensku.

Sýnt verður beint frá fundinum á netinu á slóðinni
www.kaupthing.com/ir og einnig verður hægt að fylgjast með honum í
síma: Bretland + 44 203 043 24 36, Bandaríkin +1 866 458 40 87 og
Svíþjóð +46 8 505 598 53.

Kynningarefni og upptöku af kynningarfundi verður hægt að nálgast á
heimasíðu bankans, www.kaupthing.com, að loknum fundi.

Kynningarfundur í Lundúnum
Hreiðar Már Sigurðsson kynnir afkomu bankans í Lundúnum 31. júlí, kl.
16.00 að staðartíma. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Kaupthing
Singer & Friedlander að Hanover Street 1, London W1S 1AX.

Vinsamlega hafið samband við Fríðu Filipinu Fatalla í
Fjárfestatengslum í síma 444-6192 til að fá nánari upplýsingar eða
sendið póst á netfangið ir@kaupthing.com.