Össur hf. - Uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2008



Helstu niðurstöður fyrir annan ársfjórðung 2008

  * Sala var 92,9 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 6% frá sama
    tímabili 2007.
  * EBITDA var 19 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 10% frá sama
    tímabili 2007.
  * EBITDA hlutfall var 20,5%, samanborið við 19,7% á sama tíma í
    fyrra.
  * Hagnaður tímabilsins var 3,9 milljónir Bandaríkjadala, samanborið
    við 1,5 milljónir á sama tímabili 2007.
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
    tilliti til kauprétta var 2,42 bandarísk sent, jókst um 25% frá
    sama tímabili 2007.
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 0,93 bandarísk
    sent, jókst um 138% frá sama tímabili í fyrra.


Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008

  * Sala var 182,6 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 8% frá sama
    tímabili 2007.
  * EBITDA var 42 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 52% frá sama
    tímabili 2007.
  * EBITDA hlutfall var 23,0%, samanborið við 16,4% á sama tímabili
    2007.
  * Hagnaður tímabilsins var 10,6 milljónir Bandaríkjadala,
    samanborið við 1,2 milljón dala tap á sama tímabili 2007.
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
    tilliti til kauprétta var 5,39 bandarísk sent, jókst um 90% frá
    sama tímabili í fyrra.
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 2,51 bandarísk
    sent, samanborið við -0,32 á fyrri   hluta ársins 2007.


Jón Sigurðsson, forstjóri:"Helstu áherslur ársins  2008 eru  að auka  arðsemi og  að hagræða  í
vörulínum fyrirtækisins. Okkur hefur tekist að auka arðsemi félagsins
talsvert á fyrstu sex mánuðum ársins  þrátt fyrir slaka sölu á  öðrum
ársfjórðungi. Óvenju fáar vörur hafa verið markaðssettar á fyrstu sex
mánuðum  ársins,  en  von  er  á  áhugaverðum  nýjum  vörum  sem   og
endurbættum vörum á seinni hluta ársins."


Live comments form the CEO, see link here below:
www.ossur.com/ceocomments

Attachments

Ossur Q2 2008 Market Presentation.pdf Ossur hf Q2 2008 Financial Statement.pdf Ossur Q2 2008 afkomufrett.pdf