- Leiðrétting: Afkoma Glitnis banka á 2. ársfjórðungi 2008 - Frétt birt: 2008.08.01:10:12:10 CET



Leiðréttur fréttaflokkur
Fyrirsögn í fréttatilkynningu leiðrétt.

Hagnaður samstæðu fyrir skatta 15,4 milljarðar á fyrri helmingi
                               ársins
   Hagnaður færður yfir eigið fé 40 milljarðar króna fyrir skatta
              Sterk lausafjárstaða 8,1 milljarður evra

HELSTU NIÐURSTÖÐUR

  * Hagnaður eftir skatta á 2. ársfjórðungi nam 7,6 milljörðum króna,
    aukning um 29,3% frá 1. ársfjórðungi 2008
  * Arðsemi eigin fjár 17,0% á ársgrundvelli samanborið við 15% á
    fyrri ársfjórðungi
  * Hreinar rekstrartekjur hafa aldrei verið hærri, eða 26,9
    milljarðar króna og jukust um 5% frá síðasta ársfjórðungi sem þá
    var metfjórðungur í þessu tilliti
  * Hreinar vaxtatekjur á 2. ársfjórðungi voru 17,8 milljarðar og
    jukust um 29% frá fyrra ársfjórðungi
  * Þóknanatekjur áfram sterkar og voru 9,3 milljarðar nú og drógust
    saman um 12,7% frá 1. ársfjórðungi
  * Gjöld námu 14,8  milljörðum króna sem er 7,2% hækkun frá 1.
    ársfjórðungi 2008
  * Samdráttur var á  lánasafni bankans, leiðrétt fyrir gengi og
    verðbólgu, upp á  2% á 2. ársfjórðungi
  * Lausafjárstaða hefur haldist traust og nam 8,1 milljarði evra í
    lok annars ársfjórðungs
  * Eiginfjárhlutfall á CAD grunni helst sterkt og var 11,2%, þar af
    var A-hlutfall 8,0%

TÍÐINDI AF TÍMABILINU

  * Tekjur af kjarnastarfsemi voru traustar, hafa aukist um 10%  að
    meðaltali á hverjum ársfjórðungi (CQGR) frá 2. ársfjórðungi 2007
  * Hagnaður af kjarnastarfsemi fyrir skatta[1] jókst um 19,9% milli
    ársfjórðunga
  * Hlutfall kostnaðar af tekjum hækkaði lítillega og var  55%
    samanborið við 54% á fyrsta ársfjórðungi
  * Góð afkoma var á markaðsviðskiptum og fyrirtækja- og
    fjárfestingabankasviðum á fyrri helmingi ársins
  * 40% ráðgjafatekna á fyrstu sex mánuðum ársins voru tengdar
    markaðssyllum. Verkefnastaða á syllum góð horft fram á veginn
  * Í júní var kynnt ný alþjóðleg sparnaðarleið, Save&Save, í Noregi
    og á Íslandi. Glitnir mun kynna þessa vöru á fleiri markaðssvæðum
    á næstu misserum
  * Vel heppnuð útgáfa sérvarins skuldabréfs í Noregi að andvirði 900
    m. evra

Lárus Welding, forstjóri Glitnis: "Ég er afar sáttur við afkomu
Glitnis á öðrum ársfjórðungi. Tekjur og hagnaður af kjarnastarfsemi
jukust um tæplega 20% annan fjórðunginn í röð. Bankinn hefur með
skýrri stefnumörkun og skipulögðum aðgerðum sýnt mikinn styrk við
erfiðar aðstæður á alþjóðlegum fjármálamörkuðum á þessu ári. Við
höfum stöðugt verið að bæta kjarnaafkomu bankans auk þess sem hagrætt
hefur verið í rekstri. Við gerum ráð fyrir að þær aðgerðir fari að
skila  sér á seinni hluta þessa árs.

Við höfum aflað um 2,4 milljarða evra í fjármögnun á fyrstu sex
mánuðum ársins. Þá hefur bankinn endurgreitt andvirði 2,1 milljarða
evra sem voru á gjalddaga á árinu.  Þrátt fyrir þetta og mikla
veikingu krónunnar hefur eiginfjárhlutfall bankans (CAD) hækkað frá
því á síðasta ársfjórðungi en það stendur nú í 11,2%.  Okkur hefur
einnig tekist að minnka efnahagsreikning bankans frá fyrsta
ársfjórðungi.

Undir lok ársfjórðungsins kynnti bankinn nýja
sparnaðarleið,"Save&Save" í
Noregi og á Íslandi. Markmiðið er að sækja inná önnur
markaðssvæði með þessa vöru á næstu misserum.

Við munum einbeita okkur að kjarnastarfseminni og nýta þau tengsl sem
hafa verið byggð upp í kringum markaðssyllur okkar í sjávarútvegi og
endurnýjanlegri orku.

Við gerum ekki ráð fyrir að alþjóðlegir fjármagnsmarkaðir opnist í
bráð. Lausafjárstaða bankans er góð og okkur eru ýmsar leiðir færar í
fjármögnun ekki síst í ljósi gæða eigna okkar."

Nánari upplýsingar veita:

Lárus                      Rósant   Már           Sigrún
Hjartardóttir        Már Másson
Welding                  Torfason
Forstjóri                  Framkv.stj.
Forstöðumaður             Forstöðumaður

fjármálasviðs            fjárfestatengsla              kynningarmála
S: 440 4005            S: 440 4743            S: 440
4748                 S: 440 4990

SiHj@glitnir.is             MM@glitnir.is

[1] Hagnaður eftir  skatta og afskriftir - aðrar rekstrartekjur

Reikninga Glitnis er að finna á heimasíðu bankans www.glitnir.is

Attachments

Glitnir banki 2. arsfjordungur 2008 frettatilkynning.pdf Glitnir Condensed Consolidated Interim Account June 2008.pdf