- Stofnfé aukið í Sparisjóði Mýrasýslu


Stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu hefur ákveðið að leggja til við fund
stofnfjáreigenda að stofnfé sjóðsins verði aukið um 2 milljarða króna. Stjórn
sjóðsins hefur jafnframt ákveðið að leggja til að Borgarbyggð falli frá rétti
sínum til þess að skrá sig fyrir nýju stofnfé en verði áfram í hópi
stofnfjáreigenda með um 20% þess eftir aukningu. Kaupþing banki hefur
skuldbundið sig til þess að skrá sig fyrir 1.750 milljónum og aðrir fjárfestar
fyrir 250 milljónum. Kaupþing hefur jafnframt skuldbundið sig til þess að
útvega SPM kaupanda að 8,73% eignarhlut Sparisjóðs Mýrasýslu í Icebank hf. 

Eftir stofnfjáraukninguna verður hlutur Kaupþings í stofnfé SPM 70%, hlutur
Borgarbyggðar 20% og annarra fjárfesta 10%. 

Áætlað er að fundur stofnfjáreigenda, þar sem tillaga stjórnar verður lögð
fram, verði  föstudaginn 15. ágúst. 

„Rekstur SPM hefur verið erfiður á fyrri hluta ársins vegna slæms árferðis á
fjármálamörkuðum.  Með nýju stofnfé verður fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins
traustur og hann mun þjóna viðskiptavinum sínum vel hér eftir sem hingað til,”
segir Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri. 

„Stjórn sjóðsins fagnar því að fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins sé  treystur
og að Kaupþing hafi ákveðið að taka þátt í stofnfjáraukningunni. Stjórnin
væntir góðs af samstarfinu við bankann,” segir Sigurður Már Einarsson, formaður
stjórnar sparisjóðsins. 

Stofnfjáraukningin er háð samþykki lánveitenda Sparisjóðs Mýrasýslu,
Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. 


Nánari upplýsingar veita:

Sigurður Már Einarsson, stjórnarformaður Sparisjóðs Mýrasýslu í síma 861 2855
Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu í síma 430 7507