- Viðskipti fruminnherja



Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings banka hf. og Sigurður
Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings banka hf. hafa í dag 6. ágúst
2008 hvor um sig nýtt kauprétt að 812.000 hlutum í bankanum á genginu
303 kr. á hlut í samræmi við kaupréttaráætlun sem samþykkt var á
aðalfundi bankans 27. mars 2004.   Hreiðar Már Sigurðsson hefur
jafnframt framselt hlut sinn til eignarhaldsfélags síns, Hreiðars Más
Sigurðssonar ehf.

Hreiðar Már á nú kauprétt að 2.436.000 hlutum í bankanum. Aðilar
fjárhagslega tengdir Hreiðari Má eiga 8.195.856 hluti í bankanum
eftir viðskiptin. Réttindi aðila fjárhagslega tengdum Hreiðari Má
Sigurðssyni samkvæmt framvirkum samningi nema 205.078 hlutum.

Sigurður Einarsson á 8.992.423 hluti í bankanum eftir viðskiptin.
Sigurður á nú kauprétt að 2.436.000 hlutum í bankanum. Aðilar
fjárhagslega tengdir Sigurði eiga 14.111 hluti í bankanum.