- 6 mánaða uppgjör 2008


Árshlutareikningur Heklu fasteigna ehf. fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní
2008 hefur verið staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins. 
Árshlutareikningurinn hefur fengið fyrirvaralausa könnunaráritun löggilts
endurskoðanda félagsins. 

Rekstur
Heildartekjur Heklu fasteigna ehf. námu á tímabilinu 1. janúar til 30. júní
2008 119 millj. kr. og rekstrargjöld námu 26,9 millj. kr.  Rekstrarhagnaður,
EBITDA, nam því 92,1 millj. kr.  Að teknu tilliti til matsbreytinga
fjárfestingaeigna og fjármagnsliða nam hagnaður félagsins fyrir tekjuskatt 63
millj. kr. og hagnaður tímabilsins nam 75,2 millj. kr. 

Efnahagur
Heildareignir Heklu fasteigna ehf. voru þann 30. júní 2008 bókfærðar á 2.457
millj. kr.  Heildarskuldir félagsins námu á sama tíma 2.082,2 millj. kr.   Þann
30. júní 2008 var eigið fé Heklu fasteigna ehf. 374,8 millj. kr. og
eiginfjárhlutfall 15,25%. 


Nánari upplýsingar veitir
Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri, sími: 590 5000, netfang: birgir@hekla.is.

Attachments

hekla fasteignir - lykiltolur.pdf hekla fasteignir ehf arshlutareikningur 30 6 08.pdf