Afkoma MP Fjárfestingarbanka hf. á fyrri helmingi ársins 2008 Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag: • Hagnaður á fyrstu sex mánuðum ársins nam 1.525 m.kr. sem er 36,4% aukning samanborið við fyrstu sex mánuðina árið 2007. • Hagnaður bankans fyrir skatta á fyrri helmingi ársins nam 1.540 m.kr. sem er 16,5% aukning frá sama tíma í fyrra. • Hreinar vaxtatekjur eru 762 m.kr. á fyrstu sex mánuðunum samanborið við 159 m.kr. fyrstu sex mánuði árið 2007. • Vaxtatekjur jukust um 45,6% á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við sama tíma í fyrra og námu alls 3.190 m.kr. • Arðsemi eigin fjár (ROE) jafngildir 49,6% ávöxtun á ársgrundvelli fyrstu sex mánuði ársins 2008. • Gengishagnaður af fjármálastarfsemi jókst um 8,3% á milli tímabila og er 679 m.kr. • Hreinar rekstartekjur jukust um 16,5% frá sama tíma í fyrra og námu 2.083 m.kr. • Heildareignir bankans jukust um 29,8% frá áramótum, voru 68.220 m.kr. í lok júní 2008, samanborið við 52.549 m.kr. þann 31. desember 2007. • Laust fé bankans nam 10.742 m.kr. þann 30. júní 2008. • Eigið fé var 7.502 m.kr. þann 30. júní 2008 sem nemur 21,3% aukningu frá 31. desember 2007. • Eiginfjárhlutfall (CAD) samstæðunnar var 29,6% í lok júní 2008 samanborið við 28,1% í árslok 2007. • Hagnaður á hlut var 1,43 á fyrstu 6 mánuðum ársins samanborið við 1,04 fyrir sama tímabil á síðasta ári sem nemur 37,5% hækkun. • Fjöldi starfsmanna eru 50 þann 30. júní 2008 samanborið við 41 starfsmenn á sama tíma í fyrra. Frekari upplýsingar veitir Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP Fjárfestingarbanka. Sími +354 540 3200. Afrit af ársreikningi bankans má finna á heimasíðu bankans, www.mp.is.