- 6 mánaða uppgjör 2008


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2008
staðfestur af stjórn  félagsins í dag, 29. ágúst 2008. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera sveitarfélögin ábyrgð á
skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis
Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því
undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á fyrri hluta árs 2008 var 40.285.343 krónur og eigið fé var
neikvætt um   27.365.552 kr. samkvæmt árshlutareikningi. 

Skuldir félagsins eru vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. 30. júní 2008 námu eftirstöðvar lána 486.971.679
krónum og voru eftirstöðvar í skilum. 
Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Valdimarsson, formaður stjórnar í síma 892
9360. 

Grundarfirði, 29. ágúst 2008
Jeratún ehf.

Attachments

jeratun ehf. 1.1-30.6 2008.pdf